Verkalýðsfélag Akraness
Verkalýðsfélag Akraness
Kt. 680269-6889
Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir
upplýsingum og annarri aðstoð.
-
Þjóðbraut 1,
300 Akranes
-
Sími:
4309900
-
Netfang:
skrifstofa@vlfa.is
Afgreiðslutími
Mánudag-fimmtudag kl. 08:00-16:00 og föstudaga kl. 8:00-15:15. Utan afgreiðslutíma félagsins er hægt að ná í formann félagsins, Vilhjálm Birgisson, í síma 865-1294.
Nýjar fréttir
Fræðsludagur trúnaðarmanna vel sóttur hjá Verkalýðsfélagi Akraness
Verkalýðsfélag Akraness hélt fræðsludag fyrir trúnaðarmenn félagsins í gær og…


Rafrænni kosningu um kjarasamning Samiðnar við Samtök atvinnulífsins er nú lokið. Skrifað var undir samningin 22. júní síðastliðinn en eftir honum starfa félagsmenn Iðnsveinadeildar Verkalýðsfélags Akraness. Niðurstöður kosningarinnar eru að 66,67% sögðu já en 33,33% sögðu nei. Samningurinn er því samþykktur og gildir hann frá 1. maí 2015 og til loka árs 2018.
Eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni þá gerði Verkalýðsfélag Akraness tímamótasamning við Norðurál 17. mars síðastliðinn. Tímamótin voru fólgin í því að laun starfsmanna voru launavísitölutryggð en starfsmenn hækkuðu strax um rúm 6% frá og með 1. janúar síðastliðnum ásamt því að fá 300.000 kr. eingreiðslu hver og einn. Næsta hækkun tekur gildi núna frá 1. júlí síðastliðnum og miðast hún við hækkun launavísitölunnar frá desember 2014 til júlí 2015. Nú liggur hækkun launavísitölunnar fyrir og mun hún skila starfsmönnum launahækkun upp á 4,32% sem mun gilda eins og áður sagði frá og með 1. júlí síðastliðnum.
Verkalýðsfélag Akraness vill minna á kynningarfund um nýgerðan kjarasamning SGS við Samtök atvinnulífsins fyrir verkafólk á hinum almenna vinnumarkaði. Fundurinn er haldinn á Gamla Kaupfélaginu hefst hann klukkan 18:00 og eru félagsmenn eindregið hvattir til að mæta og kynna sér innihald samningsins.