• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15

Þjónusta VIRK er fyrir einstaklinga sem búa við skerta starfsgetu vegna heilsubrests og stefna að aukinni þátttöku á vinnumarkaði.

Hjá Verkalýðsfélagi Akraness hefur Virk aðstöðu fyrir ráðgjafa á sínum vegum.  

Hægt er að nálgast allar upplýsingar um starfsemi VIRK inni á heimasíðunni þeirra.  www.virk.is

Til að eiga rétt á þjónustu þarf einstaklingur að vera með vottaðan heilsubrest frá lækni. Þjónusta VIRK er einstaklingum að mestu að kostnaðarlausu. 

Image

 

Tilgangur þjónustu VIRK er að aðstoða fólk við að komast aftur í vinnu. Um er að ræða markvissa ráðgjöf sem snýr að starfsendurhæfingu og krefst fullrar þátttöku viðkomandi einstaklings. Þjónustan er ferli sem felur í sér greiningu á stöðu og möguleikum eftir verkferlum VIRK.

Fljótlega eftir að einstaklingur hefur þjónustu hjá VIRK er mál hans tekið fyrir af þverfaglegu teymi til að tryggja sem besta þjónustu og setja upp einstaklingsmiðaða áætlun til starfsendurhæfingar. Í framhaldi er sett upp einstaklingsmiðuð áætlun til starfsendurhæfingar. Í þverfaglegu teymi starfa m.a. læknar, sjúkraþjálfarar, sálfræðingar, iðjuþjálfar og félagsráðgjafar allt eftir þörfum hvers og eins.

 

Meginskilyrði fyrir aðstoð hjá VIRK eru tvö: 

Að viðkomandi geti ekki sinnt starfi sínu eða tekið þátt á vinnumarkaði vegna hindrana af völdum heilsubrests sem rekja má til veikinda eða slysa. Um er að ræða fjarvistir frá vinnu í lengri tíma vegna heilsubrests af andlegum eða líkamlegum toga.

Að markmið einstaklings sé að verða aftur virkur þátttakandi á vinnumarkaði, eða auka þátttöku á vinnumarkaði, svo fljótt sem verða má.

Auk þess er nauðsynlegt að: 

Geta og vilji sé til staðar til að taka markvissan þátt í starfsendurhæfingunni. Viðkomandi þarf að vera fær um að axla ábyrgð á eigin lífi, geta tekið þátt í athöfnum daglegs lífs og sinnt nauðsynlegum þáttum endurhæfingar/starfsendurhæfingar.

Þjónustan sé líkleg til árangurs á þeim tíma sem hún er veitt.

Samráð sé við viðeigandi aðila, s.s. heimilislækni, meðferðaraðila og atvinnurekanda þegar við á.

 

Nánari upplýsingar á heimasíðu VIRK www.virk.is

 

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image