• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
10
Mar

Orlofshús sumar 2026

Við opnum fyrir umsóknir orlofshúsa fyrir sumarið þriðjudaginn 17. mars og umsóknarfrestur er til 29. mars 2026

Sumartímabilið er frá 27. maí - 2. sept. og leigutími hverrar eignar er ein vika, frá miðvikudegi til miðvikudags.

Sótt er um á mínar síður félagsins - mitt.vlfa.is -> orlofskerfi

Mikilvægt er að fara yfir persónuupplýsingar, að netfang og símanúmer séu rétt, svo hægt sé að hafa samband við félagsmann ef þörf er á.

Í umsókninni er hægt að velja sex vikur til að sækja um en hver félagsmaður getur einungis fengið úthlutaðri einni viku yfir sumartímabilið.

Punktastaða ræður úthlutun.

Úthlutun fer fram 31. mars og þeir sem fá úthlutað orlofshúsi fá sent sms og tölvupóst.

Krafa stofnast í heimabanka og greiða þarf leiguverð fyrir 8. apríl.

Ef leiga er ekki greidd fellur hún niður og húsinu verður endurúthlutað.

Endurúthlutun fer fram 9. apríl (vikur sem ekki hefur verið greitt fyrir). 

Eindagi vegna endurúthlutunar er 15. apríl og eftir það verður hægt að bóka lausar og ógreiddar vikur á mínar síður.

Nánari upplýsingar um eignir og verð á orlofssíðu félagsins - hér

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image