Verkalýðsfélag Akraness
Verkalýðsfélag Akraness
Kt. 680269-6889
Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir
upplýsingum og annarri aðstoð.
-
Þjóðbraut 1,
300 Akranes
-
Sími:
4309900
-
Netfang:
skrifstofa@vlfa.is
Afgreiðslutími
Mánudag-fimmtudag kl. 08:00-16:00 og föstudaga kl. 8:00-15:15. Utan afgreiðslutíma félagsins er hægt að ná í formann félagsins, Vilhjálm Birgisson, í síma 865-1294.
Nýjar fréttir
Fræðsludagur trúnaðarmanna vel sóttur hjá Verkalýðsfélagi Akraness
Verkalýðsfélag Akraness hélt fræðsludag fyrir trúnaðarmenn félagsins í gær og…


Í gær undirritaði Verkalýðsfélag Akraness ásamt öðrum þeim félögum sem aðild eiga að kjarasamningi við Norðurál, undir 5 ára kjarasamning við Norðurál. Það er ástæða til að tala um tímamótasamning, enda hefur það formanni vitanlega ekki verið gert áður að tengja launahækkanir verkafólks og iðnaðarmanna við launavísitölu.

Formanni Verkalýðsfélags Akraness hefur borist vitneskja með óyggjandi hætti um að Samtök atvinnulífsins með Björgólf Jóhannsson, forstjóra Icelandair Group og formann Samtaka atvinnulífsins í broddi fylkingar, hafi samið við flugstjóra Icelandair í lok síðasta árs upp á rúm 25% og þar af koma rétt rúm 15% á fyrsta ári. Þetta er til viðbótar þeim tæpu 9% sem samið var um við flugstjóra í maí í fyrra í 3 mánaða samningi. Formaður vill byrja á því að óska flugstjórum til hamingju með þennan frábæra samning sem þeir hafa náð við Samtök atvinnulífsins.
Það er óhætt að segja að lítið sé að frétta af kjarasamningsviðræðum á hinum almenna vinnumarkaði en eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni þá lagði Starfsgreinasamband Íslands fram kröfugerð sem lýtur að því að stigin verði jöfn og þétt skref í átt til þess að dagvinnulaun dugi fyrir lágmarksframfærslu. Krafan gengur út á það að lágmarkslaun verði orðin 300.000 kr. innan þriggja ára.
Þjónusta Verkalýðsfélags Akraness við félagsmenn sína er margvísleg og sem dæmi stendur hin árlega skattframtalsaðstoð yfir þessa dagana. Í gegnum árin hefur félagið boðið upp á þessa þjónustu fyrir sína félagsmenn og hefur hún svo sannarlega sannað gildi sitt en á annað hundrað manns nýta sér þessa þjónustu árlega. 