Verkalýðsfélag Akraness
Verkalýðsfélag Akraness
Kt. 680269-6889
Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir
upplýsingum og annarri aðstoð.
-
Þjóðbraut 1,
300 Akranes
-
Sími:
4309900
-
Netfang:
skrifstofa@vlfa.is
Afgreiðslutími
Mánudag-fimmtudag kl. 08:00-16:00 og föstudaga kl. 8:00-15:15. Utan afgreiðslutíma félagsins er hægt að ná í formann félagsins, Vilhjálm Birgisson, í síma 865-1294.
Nýjar fréttir
Fræðsludagur trúnaðarmanna vel sóttur hjá Verkalýðsfélagi Akraness
Verkalýðsfélag Akraness hélt fræðsludag fyrir trúnaðarmenn félagsins í gær og…


Nú eru aðildarfélög Starfsgreinasambands Íslands hvert á fætur öðru að móta sínar kröfugerðir vegna komandi kjarasamninga. Það er ljóst að mörg aðildarfélög innan SGS vilja leggja ríka áherslu á að lagfæra lágmarkslaun og lágmarkstaxta enda er það skoðun margra að þau lágmarkslaun sem í gildi eru í dag dugi engan veginn fyrir lágmarksframfærslu. 

Það er óhætt að segja að Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins fari mikinn þessa dagana en að undanförnu hafa lágmarkslaun og atvinnuleysis- og örorkubætur verið umtalsvert til umfjöllunar í fjölmiðlum. Karen Kjartansdóttir, fréttamaður á Stöð 2, hefur fjallað um þetta málefni að undanförnu. Síðastliðinn laugardag var
Þess er nú beðið að gulldepluveiðar glæðist en tvö skip HB Granda hafa undanfarna daga leitað að þessum smáa fiski frá Skerjadjúpi í vestri og austur fyrir Vestmannaeyjar. Á Akranesi eru starfsmenn fiskmjölsverksmiðju félagsins tilbúnir til þess að taka á móti afla og vinna hann en ekkert hefur verið unnið í verksmiðjunni frá því í júlí í sumar.
Síðastliðinn föstudag var undirritaður áframhaldandi samningur við VIRK Starfsendurhæfingarsjóð um starf ráðgjafa á sviði starfsendurhæfingar fyrir stéttarfélögin á Akranesi. Að þessum samningi koma Verkalýðsfélag Akraness, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og VR. Við undirritun samningsins kynnti Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Starfsendurhæfingarsjóðs, starfsemi sjóðsins almennt og einnig fór hún sérstaklega yfir það hvernig þjónustan á Akranesi hefur gengið.