Verkalýðsfélag Akraness
Verkalýðsfélag Akraness
Kt. 680269-6889
Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir
upplýsingum og annarri aðstoð.
-
Þjóðbraut 1,
300 Akranes
-
Sími:
4309900
-
Netfang:
skrifstofa@vlfa.is
Afgreiðslutími
Mánudag-fimmtudag kl. 08:00-16:00 og föstudaga kl. 8:00-15:15. Utan afgreiðslutíma félagsins er hægt að ná í formann félagsins, Vilhjálm Birgisson, í síma 865-1294.
Nýjar fréttir
Alvarlegt áfall á Grundartanga – framleiðsla dregst saman um 66%
Staðan á Grundartanga er nú mjög alvarleg eftir að búið…
Formaður VLFA endurkjörinn formaður Starfsgreinasambands Íslands
Formaður Verkalýðsfélags Akraness, var á 10. þingi Starfsgreinasambands Íslands (SGS)…


Það er óhætt að segja að það ríki algjört neyðarástand hjá íslenskum heimilum um þessar mundir. Nú liggja fyrir nýjar tölur um að fjármálastofnanir þessa lands hafi leyst til sín 4.290 íbúðir frá 1. janúar 2009 sem gerir 86 íbúðir á mánuði eða sem nemur rétt tæpum fjórum íbúðum hvern virkan dag á þessu tímabili. Já takið eftir, tæpar 4 íbúðir leysa fjármálastofnanir hér á landi til sín hvern einasta virka vinnudag ársins. Ugglaust fá fjölskyldur í einhverjum tilfellum að vera áfram í íbúðunum sem leigjendur til að þær lendi ekki beint á götunni en þetta eru skelfilegar tölur og sýnir í hvers lags gríðarlegri neyð íslensk heimili eru um þessar mundir vegna hrunsins.
Eins og fram hefur komið í fréttum er Verkalýðsfélag Akraness ásamt öðrum aðildarfélögum innan ASÍ í átaki gegn verðhækkunum og var almenningur hvattur til að vera á varðbergi undir kjörorðinu Vertu á verði. Þessari áskorun tók maður að nafni Reynir Ásgeirsson í Kópavogi svo sannarlega enda hefur hann gert ítarlega verðkönnun og kannað verð á rúmlega 170 vöruflokkum í 7 verslunum. Verkalýðsfélag Akraness vill taka það fram að þessi könnun er alfarið á ábyrgð þess sem hana framkvæmdi en er frábært innlegg í þá baráttu að benda almenningi á hvar hagkvæmast er að framkvæma sín matarinnkaup. Hægt er að skoða þessa
Eins og undanfarin ár býður Verkalýðsfélag Akraness upp á aðstoð við gerð einfaldra skattframtala og eru félagsmenn nú þegar byrjaðir að skrá sig. Aðstoðin hefst mánudaginn 11. mars og stendur til föstudagsins 22. mars. Á þeirri forsendu er gríðarlega mikilvægt að félagsmenn panti sér tíma sem fyrst en á undanförnum árum hafa á annað hundrað manns nýtt sér þessa aðstoð félagsins á hverju ári. Hægt er að panta tíma með því að hringja á skrifstofu félagsins í síma 4309900 eða koma við þar.