Verkalýðsfélag Akraness
Verkalýðsfélag Akraness
Kt. 680269-6889
Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir
upplýsingum og annarri aðstoð.
-
Þjóðbraut 1,
300 Akranes
-
Sími:
4309900
-
Netfang:
skrifstofa@vlfa.is
Afgreiðslutími
Mánudag-fimmtudag kl. 08:00-16:00 og föstudaga kl. 8:00-15:15. Utan afgreiðslutíma félagsins er hægt að ná í formann félagsins, Vilhjálm Birgisson, í síma 865-1294.
Nýjar fréttir
Alvarlegt áfall á Grundartanga – framleiðsla dregst saman um 66%
Staðan á Grundartanga er nú mjög alvarleg eftir að búið…
Formaður VLFA endurkjörinn formaður Starfsgreinasambands Íslands
Formaður Verkalýðsfélags Akraness, var á 10. þingi Starfsgreinasambands Íslands (SGS)…



Rétt í þessu undirritaði formaður félagsins nýjan kjarasamning á hinum almenna vinnumarkaði hjá ríkissáttasemjara. Meginatriði samningsins eru eftirfarandi:
Fundað var vegna launaliðar Norðuráls í húsakynnum ríkissáttasemjara í gær. Það er skemmst frá því að segja að árangurinn af þessum fundi var lítill sem enginn. Fram kom í máli Ragnars Guðmundssonar, forstjóra Norðuráls, að fyrirtækið sé tilbúið til að koma með þær launahækkanir sem um var samið á hinum almenna vinnumarkaði en þar var samið til þriggja ára og nam heildarkostnaðarhækkun 11,4%.
Fundur verður haldinn vegna launaliðar kjarasamnings Norðuráls klukkan 13 í dag í húsakynnum ríkissáttasemjara. Þetta er fyrsti fundurinn vegna Norðuráls í langan tíma og löngu orðið tímabært að fara að koma þeim samningaviðræðum á skrið enda var launaliðurinn laus nú um áramótin.
Eins og fram hefur komið margoft hér á heimasíðunni þá hefur félagi barist fyrir því að útflutningsfyrirtæki eins og t.d öll álfyrirtækin og önnur fyrirtæki starfandi í útflutningi skili meiri launahækkun til sinna starfsmanna en greinar sem eiga í erfiðleikum eins og t.a.m. byggingariðnaðurinn.