Verkalýðsfélag Akraness
Verkalýðsfélag Akraness
Kt. 680269-6889
Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir
upplýsingum og annarri aðstoð.
-
Þjóðbraut 1,
300 Akranes
-
Sími:
4309900
-
Netfang:
skrifstofa@vlfa.is
Afgreiðslutími
Mánudag-fimmtudag kl. 08:00-16:00 og föstudaga kl. 8:00-15:15. Utan afgreiðslutíma félagsins er hægt að ná í formann félagsins, Vilhjálm Birgisson, í síma 865-1294.
Nýjar fréttir
Fræðsludagur trúnaðarmanna vel sóttur hjá Verkalýðsfélagi Akraness
Verkalýðsfélag Akraness hélt fræðsludag fyrir trúnaðarmenn félagsins í gær og…


Frá hruni hefur orðið umtalsverð lýðræðisvakning á meðal almennings hér á landi og hefur ákall frá þjóðinni hvað aukið lýðræði varðar verið mjög áberandi á liðnum árum. Það hefur verið ákall á meðal hins almenna félagsmanns innan ASÍ að lýðræði í verkalýðshreyfingunni verði aukið og m.a. er lýtur að kjöri forseta Alþýðusambands Íslands, en í dag er kosningafyrirkomulag skv. lögum ASÍ með þeim hætti að hann er kosinn inni á þingum sambandsins á tveggja ára fresti.
Á morgun hefst þing Alþýðusambands Íslands og mun standa yfir í þrjá daga, en Verkalýðsfélag Akraness á 6 fulltrúa á þessu þingi. Stjórn og trúnaðarráð Verkalýðsfélags Akraness mun leggja fram þrjár tillögur á þessu þingi, tvær ályktanir og eina lagabreytingu.
Formaður Verkalýðsfélags Akraness hafði samband við forstjórann Gylfa Jónasson sem stýrir Festa lífeyrissjóði sem Verkalýðsfélag Akraness er aðili að. Formaðurinn tjáði honum með afgerandi hætti að ef lífeyrissjóðurinn Festa muni taka þátt í kaupréttarútboði á fyrirtækinu Eimskip þá mun félagið grípa til róttækra aðgerða sem gætu verið fólgnar í því að félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness sem eru aðilar að Festu lífeyrissjóði gangi í annan lífeyrissjóð.