• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
21
May

Félagsfundur um ríkissamninginn

Kynningarfundur um ríkissamninginn. verður haldinn mánudaginn 25. maí kl 20:00, að kirkjubraut 40, 3. hæð.

 

Dagskrá 

1.     Snær Karlsson frá SGS kemur og kynnir ríkissamninginn

2.     Kynntur verður stofnanasamningur við starfsmenn SHA.

3.     Kosningar-kosið verður um ríkissamninginn.

4.     Önnur mál.

 

Þeir félagsmenn sem vinna eftir ríkissamningum eru eindregið hvattir til að mæta.

21
May

Fundur um stofnanasamning á Sjúkrahúsi Akraness

Ákveðið hefur verið að hittast í dag  verður reynt til þrautar að ganga frá stofnanasamningi fyrir starfsmann SHA.  Flest félög innan SGS eru að klára sína stofnanasamninga eða eru alveg við það.  Þeir stofnanasamningar sem við höfum séð hjá þeim félögum sem eru nú þegar búin að semja við sínar stofnanir, eru því miður töluvert frá þeim væntingum sem starfsmenn SHA hafa. 

Það verður að segjast alveg eins og er, að við teljum að það hafi verið markmiðið hjá SGS  að jafna launamun okkar félagsmanna við starfsmenn sem eru í opinberum félögum.  En miðað við það sem er verið að bjóða í þeim stofnanasamningum sem nú þegar er búið að gera ,teljum við að launamunur sé ennþá töluverður.  Hefði Verkalýðsfélag Akraness viljað sjá þá miklu samstöðu hjá aðildarfélögum SGS sem  skapast við gerð aðalkjasamningsins, því það fé sem ríkið er að láta heilbrigðissofnanirnar hafa til að gera stofnasamninga við félögin , getur á engan hátt jafnað þann launamun sem er á milli okkar félagsmanna og þeirra sem eru í opinberum félögum.

20
May

Þrjátíu til fjörtíu ný störf hjá HB-Granda

Verkalýðsfélag Akraness hefur gert samkomulag við HB-Granda um að taka upp  vaktafyrirkomulag í frystihúsi fyrirtækisins vegna nýrrar flæðilínu sem tekin verður í notkun á allara næstu dögum. Þetta breytta fyrirkomulag er með þeim hætti að það verður unnið í 12 tíma á tveimur vöktum sú fyrri byrjar kl 07:00 og stendur til 15:00 og sú síðari stendur frá 15:00 til 19:00.  Starfsmenn HB-Granda samþykktu samkomulagið í morgun í kosningu með yfirgnæfandi meirihluta.  Við þessa breytingu munu skapast allt að 40 ný störf í frystihúsi HB-Granda hér á Akranesi.  Er stjórn Verklýðsfélag Akraness afar ánægð með að þetta samkomulag skuli hafa náðst við stjórnendur HB-Granda og síðan en ekki síst við þá starfsmenn sem munu vinna eftir þessu nýja fyrirkomulagi.  Verkalýðsfélag Akraness mun fylgjast vel með að þetta breytta vaktafyrirkomulag virki sem allra best og mun aðstoða starfsmenn ef einhver vandamál kunni að koma upp.

18
May

Greiðslufrestur fyrir orlofshús

Við minnum á að þeir sem hafa fengið úthlutað orlofshúsi í sumar, greiði greiðsluseðilinn ekki síðar en 21. maí nk, eða að öðrum kosti hafi samband við skrifstofuna og fái greiðslufrest.  Ef ekki er greitt innan tilskilins frests verður viðkomandi orlofshúsi endurúthlutað.

Lausar vikur verða auglýstar mánudaginn 24. maí hér á síðunni og á skrifstofunni.

14
May

Atkvæðagreiðsla um kjarasamning Samiðnar og SA

Atkvæðagreiðsla um kjarasamning Samiðnar og Samtaka atvinnulífsins sem Verkalýðsfélag Akraness er aðili að hefst mánudaginn 17. maí og lýkur kl. 19:00 þriðjudaginn 18. maí 2004. Atkvæðagreiðsla fer fram á Skrifstofu félagsins að Sunnubraut 13. 

Félagsmenn  sem vinna eftir Kjarasamningi Samiðnar og  eru á kjörskrá, eru  hvattir til að taka þátt í atkvæðagreiðslunni. Kjarasamningurinn liggur frammi á skrifstofu félagsins. 

14
May

Kjaraviðræðum slitið við SHA

Í morgun slitnaði upp úr viðræðum um stofnanasamning á milli starfsmanna SHA og stjórnenda Sjúkrahúss Akraness.  Óvíst er með framhaldið á viðræðunum.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image