Verkalýðsfélag Akraness
Verkalýðsfélag Akraness
Kt. 680269-6889
Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir
upplýsingum og annarri aðstoð.
-
Þjóðbraut 1,
300 Akranes
-
Sími:
4309900
-
Netfang:
skrifstofa@vlfa.is
Afgreiðslutími
Mánudag-fimmtudag kl. 08:00-16:00 og föstudaga kl. 8:00-15:15. Utan afgreiðslutíma félagsins er hægt að ná í formann félagsins, Vilhjálm Birgisson, í síma 865-1294.
Nýjar fréttir
Fræðsludagur trúnaðarmanna vel sóttur hjá Verkalýðsfélagi Akraness
Verkalýðsfélag Akraness hélt fræðsludag fyrir trúnaðarmenn félagsins í gær og…


Eins og áður hefur komið fram hér á heimasíðunni þá hafa að undanförnu verið haldnir kynningarfundir á vegum félagsins um réttindi og skyldur starfsmanna Íslenska járnblendifélagsins. Í dag voru það ofngæslumenn á A-vakt sem fengu kynningu og var þetta fimmta kynningin sem formaður hefur haldið með starfsmönnum á síðastliðnum mánuði. Tvær kynningar til viðbótar eru á dagskrá á næstunni.

Það hefur örugglega ekki farið fram hjá neinum þeim sem fylgst hefur með íslenskri þjóðmálaumræðu undanfarið að framundan eru kjarasamningaviðræður á hinum almenna vinnumarkaði. Undirbúningsvinna var hafin snemma á þessu ári og eru kröfugerðir verkalýðsfélaganna nú að líta dagsins ljós.
Á morgun verður haldinn formannafundur Starfsgreinasambands Íslands. Á fundinum verða línurnar í komandi kjarasamningum væntanlega lagðar.