• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
VLFA

VLFA

Big fan of open source and Joomla

Website URL: http://joomlabuff.com

Síðasti dagur til að skila inn umsóknum um sumardvöl í orlofshúsum félagsins er næstkomandi föstudagur, 11. apríl. Aðsókn hefur verið gríðarlega góð eins og venja er og vinnur starfsfólk skrifstofu hörðum höndum að því að gera allt klárt fyrir úthlutun. Töluverð vinna liggur að baki hverri úthlutun þar sem mikilvægt er að allt fari rétt fram. Vonast er til þess að hægt verði að úthluta á þriðjudaginn 15. apríl og þá fá allir umsækjendur sent bréf, þar sem þeim er tilkynnt hvort þeir hafi fengið úthlutað eður ei.

Framundan eru stórframkvæmdir í bústöðum félagsins í Svínadal og Hraunborgum þar sem skipt verður um eldhúsinnréttingar og gólfefni. Vonast er til að þessum framkvæmdum ljúki fljótlega. Á Akureyri hafa í vetur staðið yfir framkvæmdir þar sem verið var að stækka svalirnar á öllum íbúðum hússins. Þeim framkvæmdum á að vera lokið fyrir sumarúthlutun.

Eins og komið hefur fram hér á síðunni var afkoma félagsins á síðasta ári mjög góð og gerir það að verkum að hægt er að ráðast í endurbætur sem þessar. Er það von stjórnar orlofssjóðs að þessar breytingar mælist vel fyrir hjá félagsmönnum.

Grásleppuvertíðin hjá skipverjunum á Ísaki Ak 67 fer mjög vel að stað ef marka má fyrstu tvær vitjanir þeirra.

Í fyrri róðrinum fengu þeir félagar rúmt tonn af hrognum og í seinni róðrinum var aflinn um 700 kíló af hrognum.  Verður þessi afli að teljast nokkuð góður og gefur væntingar um að vertíðin geti orðið vel viðunandi.  Vissulega spilar tíðarfarið stóra rullu í því hvernig veiðarnar ganga. Í því samhengi skiptir miklu að ríkjandi séu landáttir í stað hafátta.

Grásleppusjómenn eru almennt ekki sáttir við það verð sem nú fæst fyrir hrognin en samkvæmt þeim upplýsingum sem formaður hefur aflað sér er verðið í kringum 380 kr. fyrir kílóið af hrognum.

Skipverjanir á Ísaki Ak 67 heita Eiður Ólafsson og Kristófer Jónsson og eru þeir félagsmenn í sjómannadeild Verkalýðasfélags Akraness.

Gríðarlegt kurr er komið í starfsmenn síldarbræðslunnar hér á Akranesi eftir að forsvarsmenn HB Granda gerðu samkomulag við Ísfélagið í Vestmannaeyjum um að landa þar einum kolmunnafarmi á hvert skip fyrirtækisins, en þau skip sem um ræðir eru Ingunn AK, Faxi RE og Lundey NS.

Ástæðan fyrir þessari ákvörðun um að láta skipin landa hjá Ísfélaginu í Vestmannaeyjum en ekki í síldarbræðslu sem HB Grandi á sjálft er sú að Ísfélagið er tilbúið að greiða mun hærra verð fyrir kolmunnann heldur en forsvarsmenn HB Granda voru tilbúnir að greiða sínum skipverjum fyrir.

Ísfélagið í Vestmannaeyjum er tilbúið að greiða 14,80 kr. fyrir pr. kíló af kolmunnanum, en það sem forsvarsmenn HB Granda buðu sínum áhöfnum var mun lægra verð eða frá 11,20 kr/kg upp í 12,50 allt eftir gæðum hráefnisins.  Skipverjarnir á öllum skipum HB Granda höfnuðu því verði sem eigendur HB Granda buðu í kosningu um borð í skipunum og fór atkvæðagreiðslan þannig að 39 höfnuðu þessu verði, einn samþykkti og einn sat hjá. 

Verkalýðsfélag Akraness skilur fullkomlega þá afstöðu skipverjanna að vilja fá sama verð og Ísfélagið er að greiða og það er í raun óskiljanlegt af hverju HB Grandi getur ekki greitt sama verð fyrir kg af kolmunnanum og Ísfélagið.  Sérstaklega í ljósi þess að verksmiðjan á Akranesi er ein sú allra fullkomnasta á landinu og nánast allt hráefnið sem til hennar berst fer í hágæðamjöl.

Ástæða þess að mikið kurr er komið í starfsmenn er sú að tekjur starfsmanna síldarbræðslunnar byggjast að langstærstum hluta á því að staðnar séu vaktir þegar bræðsla á sér stað og á þeirri forsendu eru starfsmenn að verða fyrir umtalsverðu tekjutapi vegna þess að aflanum er nú landað tímabundið í Vestmannaeyjum en ekki í verksmiðju HB Granda. 

Hvernig má það vera að forsvarsmenn HB Granda sem eiga og reka eina fullkomnustu síldarbræðslu á landinu skulu taka ákvörðun um að landa ekki afla af sínum eigin skipum í sína eigin verksmiðju.  Forsvarsmenn fyrirtæksins verða að átta sig á því að þeir hafa sterkar skyldur gagnvart þeim starfsmönnum sem starfa í síldarbræðslum fyrirtækisins sem verða eins og áður sagði af umtalsverðum tekjum vegna þessarar ákvörðunar.

Formaður hefur leitað svara hjá forsvarsmönnum HB Granda vegna þessarar ákvörðunar og svarið sem formaður fékk var það að verðið sem Ísfélagið væri að greiða væri einfaldlega alltof hátt og HB Grandi treysti sér ekki til að greiða slíkt verð.

Hví í ósköpunum getur Ísfélagið greitt þetta verð fyrir kolmunnann en ekki HB Grandi.  Varla eru eigendur Ísfélagsins að leika sér að því að greiða verð fyrir kolmunnann sem ekki stenst neina skoðun.

Það verður að segjast alveg eins og er að formaður Verkalýðsfélags Akraness skilur alls ekki ýmsar ákvarðanir sem forsvarsmenn HB Granda hafa tekið í rekstri fyrirtækisins og er þessi ákvörðun ein af þeim.  Áður hefur verið fjallað um það hér á heimasíðunni hvernig við Skagamenn höfum farið útúr sameiningunni við Granda sem átti sér stað árið 2004 en frá sameiningunni hafa tapast yfir 150 störf.  Eins og flestir vita hafa forsvarsmenn HB Granda sagt upp öllum starfsmönnum nema 20 í landvinnslunni hér á Akranesi. 

Eins og áður sagði þá er margt sem formaður félagsins skilur ekki í rekstri fyrirtækisins og nægir að nefna síðustu síldarvertíð í því samhengi.  Siglt var með allan síldarkvóta skipa fyrirtækisins, sem var veiddur rétt fyrir utan Grundarfjörð, til Vopnafjarðar til vinnslu, í siglingu sem tók yfir 40 klukkustundir.  Það virðist ekki hafa komið til greina að koma upp græjum til að vinna síldina hér á Akranesi þó svo að sigling af miðunum við Grundarfjörð til Akranes taki einungis rúma 8 tíma eða 32 tímum skemmur heldur en til Vopnafjarðar.  Formaður spyr sig hvað ef síldin mun halda áfram að veiðast í Grundarfirði ætla forsvarsmenn að halda þeirri vitleysu áfram að láta skip sín sigla í 40 tíma með aflann til vinnslu, hverlags vinnubrögð eru þetta?

Einnig er hægt að nefna vinnnubrögðin í kringum loðnufrystinguna, en ráðist hefur verið í mjög miklar framkvæmdir henni tengdri á Vopnafirði og frystigetan þar hefur verið aukin á síðustu árum í um 400 tonn á sólarhring en hér á Akranesi er frystigetan einungis 100 tonn á sólarhring.  Samt er megnið af loðnunni sem unnin er til hrognatöku veidd hér í námunda við Reykjanesið.  Umtalsverðu magni af loðnuhrognum var keyrt frá Akranesi bæði á þessari vertíð sem og á vertíðinni í fyrra frá Akranesi til Vopnafjarðar til frystingar.  Því spyr formaður sig ætla forsvarsmenn HB Granda að auka frystigetuna hér á Akranesi fyrir næstu vertíð eða ætlar fyrirtækið að halda áfram að keyra hrognum til Vopnafjarðar til frystingar með tilheyrandi kostnaði?

Eins og áður sagði þá er sorglegt að sjá hvernig við Skagamenn höfum farið útúr þessari sameingu við Grandamenn einfaldlega vegna þess að svo virðist sem öll "hagræðing" sé látin bitna á okkur Skagamönnum.

Bæjarráð Akraneskaupstaðar hefur falið formanni Verkalýðsfélags Akraness og bæjarstjóra Akranes að kalla eftir skýringum frá forsvarsmönnum HB Granda á því að 7.693 tonn af bolfiski (5.442 þorsksígildistonn) hafa farið frá fyrirtækinu yfir á önnur skip sem ekki eru í eigu HB Granda á yfirstandandi fiskveiðiári.

Ástæða þess að óskað er eftir þessum skýringum er sá gríðarlegi samdráttur sem orðið hefur í landvinnslu fyrirtækisins hér á Akranesi.  Eins og flestir muna var öllum nema 20 starfsmönnum fyrirtækisins í landvinnslunni sagt upp störfum vegna aflasamdráttar í þorskveiðum á yfirstandandi fiskveiðiári.

Á þeirri forsendu er eðlilegt að kallað sé eftir skýringum á því hvert áðurnefndar aflaheimildir hafa farið, sérstaklega í ljósi þess að verið er að taka lífsviðurværi af fólki sem starfað hefur hjá fyrirtækinu í tugi ára.  Vissulega geta verið eðlilegar skýringar á því að farin séu tæp 8.000 tonn frá fyrirtækinu yfir á önnur skip og ein skýring gæti verið sú að HB Grandi sé að láta önnur skip en sín eigin veiða umræddar aflaheimildir til vinnslu.  Það kemur þá væntanlega í ljós ef svo er og þá einnig hvert sá afli hefur farið í vinnslu.

Formaður félagsins telur það mjög mikilvægt að forsvarsmenn HB Granda útskýri þennan flutning á aflaheimildum fyrir bæjarfélaginu og stéttarfélaginu sérstaklega í ljósi þess gríðarlegs samdráttar sem orðið hefur á landvinnslu fyrirtækisins hér á Akranesi.  Enda eiga þeir aðilar sem hafa tímabundinn umráðarétt yfir auðlindum hafsins að sýna samfélagslega ábyrgð.

Það er alvitað að margar útgerðir eru að braska með aflaheimildir sínar. Það er hins vegar skoðun formanns félagsins að þær útgerðir sem ekki eru að nýta þær aflaheimildir sem þeim er úthlutað hafi lítið við þær að gera.  Það á að vera skýlaus krafa að útgerðir nýti að stærstum hluta þær aflaheimildir sem þeim eru úthlutaðar.

Samkvæmt opinberum gögnum frá Fiskistofu þá kemur fram að það hafa farið 7.693 tonn frá fyrirtækinu yfir á aðrar útgerðir eða nánar eins og hér segir:

 

Þorskur Ýsa Ufsi Karfi Langa Steinbítur Skötuselur Grálúða Samtals

296

tonn

2.343 tonn 427 tonn 4.927 tonn 7,5 tonn

8.5

tonn

110

tonn

1.5

tonn

7.693 tonn
Monday, 14 April 2008 00:00

Sumar 2008 - Nýtt orlofshús í boði

Sumarbústaður að Stóru SkógumNú er skráningu umsókna um sumardvöl í orlofshúsum félagsins lokið en frestur til að skila inn umsóknum rann út sl. föstudag. Öllum umsækjendum verður sent bréf, þar sem þeim verður tilkynnt hvort þeir hafi fengið úthlutað eður ei.

Ljóst er að aðsóknin hefur aldrei verið meiri og hefur stjórn orlofssjóðs því gripið til þess ráðs að leigja eitt orlofshús til viðbótar. Þetta hús er í eigu BSRB og er staðsett að Stóru Skógum, skammt frá Munaðarnesi. 

Í endurúthlutun sem fram fer þann 7. maí nk. verða þessar vikur að Stóru Skógum í boði, ásamt öllum þeim vikum sem ekki ganga út í fyrstu úthlutun.

Þeir sem ekki fá úthlutað nú í fyrri úthlutun eru sjálfkrafa með í seinni úthlutun. Þeir hafa, eins og vant er, möguleika á því að breyta umsókn sinni áður en til endurúthlutunar kemur. Þeir sem ekki náðu að senda umsókn sína inn fyrir sl. föstudag, hafa tækifæri til að senda inn umsókn í seinni úthlutun.

Upplýsingar um bústaðinn að Stóru Skógum er að finna hér.

Eggert B Guðmundsson forstjóri HB GrandaEggert B Guðmundsson forstjóri HB GrandaFormaður Verkalýðsfélags Akraness og bæjarstjóri Akraneskaupstaðar munu á morgun eiga fund með forstjóra HB Granda, Eggert B. Guðmundssyni.

Eins og áður hefur komið fram hér á heimasíðunni þá fól bæjarráð Akraneskaupstaðar áðurnefndum aðilum að leita skýringa hjá forsvarsmönnum HB Granda á því hvers vegna 7633 tonn af bolfiski hafi verið flutt frá skipum fyrirtækisins yfir á skip annarra útgerða.

Er þessara skýringa óskað vegna þess gríðarlegs samdráttar sem orðið hefur í landvinnslu fyrirtækisins á Akranesi og þeirra miklu hagsmuna sem um ræðir fyrir starfsfólk landvinnslunnar á Akranesi sem og allt bæjarfélagið.

HB Grandi hefur verið fjöregg okkar Skagamanna í rúm 100 ár og sú ákvörðun forsvarsmanna fyrirtækisins að segja upp öllum starfsmönnum nema 20 í landvinnslunni hefur lagst afar illa í samfélagið hér á Akranesi.

Eins og áður hefur einnig komið fram þá geta verið eðlilegar skýringar á þessum tilfærslum og ef svo er munu þær skýringar væntanlega vera lagðar fram á fundinum á morgun.  

Thursday, 17 April 2008 00:00

Aðalfundur félagsins haldinn 26. apríl

Undirbúningur fyrir komandi aðalfund stendur nú yfir á fullu hjá starfsmönnum félagsins.  En aðalfundurinn verður haldinn laugardaginn 26. apríl kl. 13:00.  Rétt er að vekja athygli á því að aðalfundurinn verður haldinn í matsal Sementsverksmiðjunnar (Fortuna)  

Eins og áður hefur komið fram hér á heimasíðunni var afkoma félagsins afar góð á síðasta ári og endurspeglast hún af gríðarlegri fjölgun á félagsmönnum á milli ára.  En félagsmönnum fjölgaði um 700 á síðasta ári.

Einnig eru starfsmenn félagsins að vinna að fréttablaði félagsins sem mun koma út rétt fyrir 1. maí og verður borið út í öll hús hér á Akranesi sem einnig í nærsveitir. 

Stjórn félagsins mun bjóða félagsmönnum uppá  lambalæri með öllu tilheyrandi í lok aðalfundar.  Stjórn félagsins hvetur félagsmenn eindregið til að mæta á aðalfundinn. 

Ársfundur Festu Lífeyrissjóðs var haldinn í gær á Selfossi.  Flestir félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness greiða sínar lífeyrissjóðgreiðslur til Festu lífeyrissjóðs. 

Lífeyrissjóður Festa varð til við sameiningu Lífeyrissjóðs Suðurlands og Lífeyrissjóðs Vesturlands á miðju ári 2006.  Á síðasta ári greiddu til samtryggingardeilda sjóðsins samtals 16.000 sjóðsfélagar hjá 1.934 atvinnurekendum.

Það var afar ánægjulegt að heyra á fundinum í gær að Festa lífeyrissjóður var með hæstu hreinu raunávöxtun allra lífeyrissjóða á landinu. Einfaldlega vegna þess að Það skiptir okkar félagsmenn gríðarlega miklu máli að ávöxtun sé jafn góð og raunin varð, enda getur ávöxtun lífeyrissjóða spilað stóra rullu hvað varðar réttindi okkar félagsmanna úr sjóðnum.  Ávöxtun sjóðsins er sérstaklega ánægjuleg í ljósi þeirra aðstæðna sem urðu á hlutabréfamarkaðnum seinni hluta síðasta árs.

Norðurál á Grundartanga var stærsti launagreiðandinn til sjóðsins með 5,2% allra iðgjalda og Flugþjónustan Keflavíkurvelli kom næst með 3,8% heildariðgjalda til sjóðsins.

Samanburður á raunávöxtun við aðra lífeyrissjóði hér á landi er eftirfarandi:

1. Festa lífeyrissjóður 2,8 %
2. Gildi lífeyrissjóður 2,4%
3. Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 1,2%
4. Lífeyrissjóður Verslunarmanna 1,1%
5. Stafir lífeyrissjóður 0,9%
6. Söfnunarsjóður Lífeyrisréttinda 0,2%
7. Sameinaði lífeyrissjóðurinn

0,0%

8. Stapi lífeyrissjóður -0,6%
9. Lífeyrissjóður bænda -1,1%
10. Almenni lífeyrissjóðurinn -1,5%
Frjálsi lífeyrissjóðurinn

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands vegna ríkissamningana mun koma saman til fundar á morgun í húskynnum ríkissáttasemjara.  Kjarasamningur SGS við ríkið rann út um síðustu mánaðarmót og bera ófaglærðir hjá ríkinu töluverðar væntingar til nýs kjarasamnings.  Enda hafa þeir ekki notið þess launaskriðs sem verið hefur á hinum almenn vinnumarkaði á undanförnum árum.

Það er mat formanns félagsins að ekki sé hægt að semja á þeim forsendum sem gert var á hinum almenna vinnumarkaði ekki alls fyrir löngu.  Ástæða þess að ekki er hægt að gagna frá samningi við ríkið á sömu nótum og gert var á hinum almenna vinnumarkaði er sú að verðbólgan var þá 5,7% en í dag er hún 8,7% og töluverðar líkur á að hún fari yfir 10% í næstu mælingu.

Nú er unnið að gerð fréttabréfs félagsins sem mun koma út rétt fyrir 1. maí. Eins og ávalt verður blaðið stútfullt af fréttum af starfsemi félagsins.

Í blaðinu verður gerð grein fyrir nýgerðum kjarasamningum á hinum almenna vinnumarkaði. Einnig er farið yfir mál er lúta að orlofshúsum félagsins en nú er verið að taka bæði sumarhúsin í Svínadal og Hraunborgum í gegn fyrir komandi sumarúthlutun.

Blaðið verður væntanlega borið út til allra Akurnesinga og nærsveitunga þriðjudaginn 29. apríl. Einnig verður hægt að nálgast blaðið hér á heimasíðunni sem og eldri blöð sem félagið hefur gefið út.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image