• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15

Nú er búið að kynna fyrir öllum starfsmönnum Íj nýgerðan kjarasamning.  Eins og fram hefur komið hér á síðunni þá gætir töluverðrar óánægju starfmanna með nokkur atriði í þessum nýgerða samningi.  Það er algjörlega orðið ljóst, að mati félagsins að mikillar gremju gætir á meðal starfsmanna yfir því hvernig framkoma við starfsmenn hefur gjörbreyst  eftir að Elkem eignaðist  meirihluta í fyrirtækinu.  Verkalýðsfélag Akraness ítrekar hversu nauðsynlegt það er að finna lausn á þessu vandamáli sem allra fyrst og leggur til að stjórnendur setjist niður eins fljót og hægt er  með starfsmönnum, og fari yfir þessa uppsöfnuðu reiði starfsmanna því ef menn ekki ræða saman finnst engin lausn, það er bara svo.   

Published in Fréttir

Kynningafundur verður með starfsmönnum (dagmönnum) á morgun um nýgerðan kjarasamning við Íslenska járnblendifélagið.  Ljóst er orðið að töluverðrar óánægju gætir hjá starfsmönnum með nokkur atriði í samningnum og lítur það einna helst að róteringu starfsmanna á milli starfsstöðva.  Einnig eru atriði sem tengjast stórauknu álagi á starfsmenn.  Það gætir vissrar reiði meðal starfsmanna sem Verkalýðsfélag Akraness skilur mæta vel.  Það hefur ýmislegt gengið á  á undanförnum árum sem starfsmenn eru ekki á eitt sáttir með, eðlilega.  Það er mat félagsins að sú harða starfsmannastefna sem eigendur Elkem hafa rekið á síðustu 5 árum hefur átt stóran þátt  í þeirri óánægju sem nú ríkir á meðal starfsmanna.   Það verða allir að leggjast á eitt um að endurskapa aftur það jákvæða andrúmsloft sem ríkti  á milli starfsmanna og stjórnenda Íslenska járnblendifélagsins, líkt og var þegar Jón Sigurðsson stjórnaði fyrirtækinu.  Verkalýðsfélag Akraness telur  að bæta þurfi samskipti starfsmanna og stjórnenda allverulega, og það sem fyrst.    Verkalýðsfélag Akraness er svo sannarlega tilbúið að leggja sitt á vogaskálarnar í þeim efnum.

Published in Fréttir

Samningafundur var haldinn í morgun vegna vaktafyrirkomulags starfsmanna.   Samningsaðilar eru að reyna að finna lausn á þeirri kröfu starfsmanna um að fá fimmta vakthópinn inn.  Það liggur orðið nokkuð ljóst fyrir að starfsmenn vilja minnka þetta mikla vinnuálag sem fylgir þessu vaktakerfi sem starfsmenn vinna nú eftir.  Samningsaðilar ræddu tvær hugmyndir um breytingu á vaktafyrirkomulagi starfsmanna á fundinum í morgun.  Ákvað samninganefnd stéttarfélaganna að  boða til kynningafundar  mánudaginn 14. febrúar kl. 20:15 að Kirkjubraut 40, sem er salur Verkalýðsfélags Akraness.  Á þessum kynningarfundi verða kynntar þær hugmyndir sem stéttarfélögin eru að velta fyrir sér.  Eitt er alveg víst að Verkalýðsfélag Akraness vill heyra hver vilji starfsmanna er í þessu máli, því er mikilvægt að starfsmenn sjái sér fært að mæta og kynna sér þessar hugmyndir.

Published in Fréttir

Fundað verður um vaktafyrirkomulag starfsmanna Norðuráls á morgun.  Fundur verður haldinn upp í Norðuráli og hefst kl. 8:30.

Published in Fréttir

Kynningafundur með ofngæslumönnum um nýgerðan kjarasamning við Íslenska járnblendifélagið var haldinn í dag í mötuneyti starfsmanna.  Formaður Verkalýðsfélags Akraness fór ýtarlega yfir kjarasamninginn og svaraði þeim spurningum sem starfsmenn Íj lögðu fyrir hann.  Næsti kynningarfundur verður haldinn fyrir dagmenn og verður sá fundur fimmtudaginn 10. febrúar kl. 13:30.  Starfsmenn Íj munu geta kosið um nýgerðan kjarasamning hjá aðaltrúnaðarmanni Íj alveg til kl. 12:00 fimmtudaginn 17. febrúar.

Published in Fréttir

Kynningarfundur um nýgerðan kjarasamning verður haldinn á morgun kl. 13:30 með starfsmönnum Íslenska járnblendifélagsins.  Það verða ofngæslumenn sem verða á fundinum á morgun.  Á fimmtudaginn verður síðan haldinn kynningarfundur með dagmönnum.  Formaður félagsins mun fara mjög ítarlega yfir nýgerðan kjarasamning á þessum kynningarfundum.  Hægt verður að kjósa um samninginn eftir báða fundina, og einnig geta starfsmenn kosið alveg fram til

kl. 12:00 þriðjudaginn 15. febrúar. 

Published in Fréttir

Samningafundur um vaktafyrirkomulag starfsmanna Norðuráls var haldinn í morgun.  Samningsaðilar veltu fyrir sér ýmsum möguleikum á fundinum í morgun með breytingu á vaktafyrirkomulagi starfsmanna Norðuráls í huga.  Eru samningsaðilar að skoða þessi mál hvor í sínu lagi og ætla að funda aftur á miðvikudaginn 9. feb kl. 8:30.

Published in Fréttir

Samningafundur verður haldinn í fyrramálið um nýjan kjarasamning við Norðurál.  Það sem verður til umræðu á fundinum á morgun er vaktafyrirkomulag starfsmanna.  Krafan er skýr frá starfsmönnum það er að fá fimmta vakthópinn inn.  Þessi krafa starfsmanna vegur afar þungt í þessum kjaraviðræðum.  Verkalýðsfélag Akraness hefur undir höndum áskorun frá starfsmönnum á vöktum, þar sem þeir  skora á samninganefnd stéttarfélaganna að tryggja að bætt verði fimmta vakthópnum inn.  Einnig skoruðu starfsmenn á samninganefndina að laun og önnur kjaraatriði verði jöfnuð við starfsmenn Alcan (Ísals).  Eftir þessari áskorun starfsmanna mun Verkalýðsfélag Akraness vinna eftir.

Published in Fréttir

Formaður félagsins fór í vinnustaðaheimsókn í dag til að heyra í og svara spurningum starfsmanna Íslenska járnblendifélagsins vegna nýs kjarasamnings.  Mat formanns eftir þessa vinnustaðafundi, er að það er afar brýnt að starfsmenn kynni sér eins vel og kostur er innihald samnings.  Verkalýðsfélag Akraness vill undirstrika  hversu nauðsynlegt það er að allir starfsmenn séu vel upplýstir um sín launakjör og önnur kjaraatriði sem starfsmenn hafa áunnið sér inn á liðnum árum og áratugum.  Kynningafundir með verkamönnum um nýgerðan kjarasamning verða haldnir dagana þriðjudaginn 8. febrúar og síðan með dagmönnum fimmtudaginn 10. febrúar, báðir fundirnir hefjast kl. 13:30.  Enn og aftur ítrekar Verkalýðsfélag Akraness það við sína félagsmenn að hafa samband ef þeir þurfa að fá skýringar á nýgerðum samningi.

Published in Fréttir

Samningafundur um nýjan kjarasamning var haldinn í morgun með forsvarsmönnum Norðuráls.  Á fundinum í morgun voru samningsaðilar að klára að fara yfir kröfur stéttarfélaganna grein fyrir grein.   Samningsaðilar voru sammála um að funda mjög stíft í næstu viku.  Ætla samningsaðilar að funda alla næstu viku þar sem rætt verður um breytingu á vaktafyrirkomulagi starfsmanna.  Krafa starfsmanna er skýr, það er að fá fimmta vakthópinn inn.  Einnig verður líka fundað um bónusmál starfsmanna í næstu viku.

Published in Fréttir

Fréttir

Nýjar fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image