• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
17
Apr

Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í heimsókn

Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Norðvestur kjördæmi þau Einar K. Guðfinnsson og Birna Lárusdóttir kíktu í heimsókn á skrifstofu félagsins í dag.

Gestirnir gerðu formanni grein fyrir helstu stefnumálum Sjálfstæðisflokksins í komandi kosningabaráttu og átti formaður gott spjall við þau.

Formaður greindi fyrrverandi sjávarútvegsráðherra m.a. frá því að hann teldi að skýlaust ætti að auka þorskkvóta enn frekar í allt að 200.000 tonn enda bendir allt til þess að þorskstofninn hér við land hafi fulla burði til að þola þá veiði og grundvallaratriði er að hér verði skapaðar auknar útflutningstekjur og fleiri störf. Formaður greindi þeim einnig frá því að það væri algerlega ólíðandi þegar útgerðarmenn sýndu ekki samfélagslega ábyrgð og tækju einhliða ákvarðanir um að selja sína aflaheimildir og skilja fólkið eftir í átthagafjötrum eins og gerst hefur vítt og breitt um landið.

Það er alltaf ánægjulegt þegar frambjóðendur og þingmenn í kjördæminu sjá sér fært að kíkja í heimsókn á skrifstofu félagsins og er ávalt tekið vel á móti öllum.

16
Apr

Verkalýðsfélag Akraness stendur fyrir opnum stjórnmálafundi með frambjóðendum

Það vakti mikla furðu hjá formanni Verkalýðsfélags Akraness þegar hann komst að því að ekki var fyrirhugað að halda opinn borgarafund hér á Akranesi fyrir einar mikilvægustu alþingiskosningar sem haldnar hafa verið hér síðustu áratugi.

Vel á fimmta þúsund kjósendur í Norðvestur kjördæmi eru búsettir á Akranesi, eða sem nemur 21% allra kjósenda kjördæmisins.

Á þeirri forsendu hversu gríðarlega mikilvægar þessar kosningar eru fyrir heimilin og fyrirtækin í þessu landi ákvað Verkalýðsfélag Akraness að standa fyrir opnum borgarafundi á sunnudaginn kemur. Fundurinn verður haldinn í Bíóhöllinni á Akranesi og hefst klukkan 15:00.

Verkalýðsfélag Akraness vill fá skýr svör frá frambjóðendum flokkanna um hver úrræði þeirra séu fyrir fólkið og fyrirtækin í þessu landi en um þessar mundir blæðir íslenskum heimilum illilega vegna þess efnahagshruns sem hefur orðið í kjölfar bankahrunsins.

Fundurinn er fyrirhugaður með þeim hætti að einn frambjóðandi frá hverjum flokki fyrir sig mun sitja í pallborði og gefst frambjóðendum kostur á framsögu og í kjölfarið munu verða leyfðar fyrirspurnir úr sal. Einnig mun formaður Verkalýðsfélags Akraness mun flytja stutt ávarp í upphafi fundar.

Fundarstjóri verður Magnús Magnússon, ritstjóri Skessuhorns.

Verkalýðsfélag Akraness hvetur alla til að fjölmenna á fundinn og krefja frambjóðendur um skýr svör varðandi þeirra stefnumál og hvernig þeir hyggjast leysa vanda heimilanna og fyrirtækjanna í landinu.

15
Apr

20% aukning á umsóknum um orlofshús sumarið 2009

Það er æði margt sem bendir til þess að félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness ætli að ferðast meira innanlands í ár ef marka má þá miklu aukningu sem orðið hefur í umsóknum um sumardvöl í orlofshúsum félagsins. Aukningin nemur 20% frá því í fyrra.

Úthlutunin stendur nú yfir og fer þannig fram að eftir að allar umsóknir hafa verið skráðar inn í tölvukerfi orlofssjóðs raðar það öllum umsóknum í röð eftir punktastöðu, þ.e. þeir umsækjendur sem flesta hafa punktana eru fremstir í röðinni og svo koll af kolli. Ef punktar tveggja eru jafnir fær sá úthlutað sem fyrr sótti um. Kerfið vinnur sig síðan í gegnum umsóknirnar og úthlutar vikum eftir punktastöðu.

Þeir sem ekki fá úthlutað í fyrri úthlutun lenda sjálfkrafa í endurúthlutun þar sem þeim vikum er úthlutað sem ekki voru greiddar á eindaga fyrri úthlutunar. Eftir eindaga endurúthlutunar verða lausar vikur auglýstar hér á heimasíðunni og hægt verður að bóka þær á skrifstofu félagsins. Gildir þá hin ágæta regla: Fyrstur kemur, fyrstur fær.

Í sumar verður sem fyrr boðið upp á dvöl í orlofshúsum félagsins í Húsafelli, Svínadal, Hraunborgum, Ölfusborgum og í þremur íbúðum á Akureyri. Að auki er félagið með í leigu bústað að Eiðum (nánari upplýsingar hér) eins og undanfarin sumur. Nýir orlofshúsamöguleikar eru bústaður í Stóru Skógum (nánari upplýsingar hér) og bústaður í Flókalundi í Vatnsfirði (nánari upplýsingar hér).

Helstu dagssetningar:

14. apríl kl. 16:00 - Frestur til að skila inn umsóknum um orlofshús í sumar rennur út

16. apríl - Fyrri úthlutun lokið, allir umsækjendur fá sent bréf um úthlutun

04. maí  - Eindagi fyrri úthlutunar, þeim vikum sem ekki eru greiddar á eindaga er úthlutað aftur

07. maí  - Endurúthlutun fer fram, þeir sem fá úthlutað fá það staðfest með bréfi

18. maí  - Eindagi endurúthlutunar

19. maí  - Fyrstur kemur, fyrstur fær! Lausum vikum er úthlutað til þeirra sem fyrstir koma

14
Apr

Frambjóðendur Frjálslynda flokksins í heimsókn

Frambjóðendur Frjálslynda flokksins í Norðvestur kjördæmi þau Ragnheiður Ólafsdóttir og Sigurjón Þórðarson kíktu í heimsókn á skrifstofu félagsins í dag.

Gestirnir gerðu formanni grein fyrir helstu stefnumálum Frjálslynda flokksins í komandi kosningabaráttu og átti formaður gott spjall við þau. Til að mynda fór formaður yfir þá fækkun sem orðið hefur í landvinnslu hér á Akranesi á undanförnum árum og áratugum en þegar mest lét þá störfuðu um 500 manns við landvinnslu hér. Í dag eru þetta í kringum 200 manns.

Það er alltaf ánægjulegt þegar frambjóðendur og þingmenn í kjördæminu sjá sér fært að kíkja í heimsókn á skrifstofu félagsins og er ávalt tekið vel á móti öllum.

14
Apr

Sumarið 2009 - síðasti dagur til að skila umsóknum um orlofshús er í dag!

Félagsmenn eru minntir á að í dag er síðasti dagur til að skila inn umsóknum um orlofshús fyrir sumarið 2009. 

Þessa stundina er unnið að því að skrá allar umsóknir inn í tölvukerfi félagsins. Úthlutun fer síðan þannig fram að kerfið raðar öllum umsóknum í röð eftir punktastöðu, þ.e. þeir umsækjendur sem flesta hafa punktana eru fremstir í röðinni og svo koll af kolli. Ef punktar tveggja eru jafnir fær sá úthlutað sem fyrr sótti um. Kerfið vinnur sig síðan í gegnum umsóknirnar og úthlutar vikum eftir punktastöðu.

  Þeir sem ekki fá úthlutað í fyrri úthlutun lenda sjálfkrafa í endurúthlutun þar sem þeim vikum er úthlutað sem ekki voru greiddar á eindaga fyrri úthlutunar. Eftir eindaga endurúthlutunar verða lausar vikur auglýstar hér á heimasíðunni og hægt verður að sækja um þær á skrifstofu félagsins. Gildir þá hin ágæta regla: Fyrstur kemur, fyrstur fær.

08
Apr

Réttindi félagsmanna aukin í ljósi góðrar afkomu

Stjórnir allra sjóða Verkalýðsfélags Akraness funduðu í gær þar sem farið var yfir ársreikninga félagsins með endurskoðendum.

Það er skemmst frá því að segja að afkoma félagsins var mjög góð og skiluðu allir sjóðirnir töluverðum rekstrarafgangi þrátt fyrir þær hremmingar sem geysað hafa í kjölfar hruns bankanna. Og vill stjórn félagsins upplýsa félagsmenn um að Verkalýðsfélag Akraness tapaði ekki einni einustu krónu vegna þeirra hamfara sem riðu yfir bankakerfið enda var félagið hvorki aðili að peningamarkaðssjóðum bankanna né þátttakandi í hlutabréfakaupum. Það er stefna stjórnar félagsins að ávaxta fjármuni félagsins ávalt á sem besta og tryggasta hátt á venjubundum innlánsreikningum.

Þessi góða afkoma sjóðanna gerist einnig þrátt fyrir að búið sé að auka styrki úr sjúkrasjóði umtalsvert á liðnum árum og tók stjórn sjóðsins t.a.m. þá ákvörðun í gær að taka inn einn nýjan styrk til viðbótar og verður hann kynntur á aðalfundi félagsins þann 21. apríl nk.

Stjórn orlofssjóðs ákvað einnig að bjóða félagsmönnum upp á nýjung nú í sumar. Hægt verður að fá endurgreiðslu á kostnaði vegna gistingar á tjaldsvæðum og nemur sú endurgreiðsla 5.000 kr. gegn framvísun fullgildra kvittana.

Allt er þetta gert í ljósi þess að afkoma félagsins er mjög góð um þessar mundir þó vissulega séu blikur á lofti hvað varðar iðgjaldatekjur á þessu ári vegna samdráttar á vinnumarkaði.

Samtals nutu 1240 manns fjárhagslegs ávinnings af félagsaðild sinni með beinum hætti á liðnu ári sem er um 44% af öllum félagsmönnum Verkalýðsfélags Akraness. Á síðasta ári voru félagsmenn alls 2.839.

Það er stefna stjórnar Verkalýðsfélags Akraness að láta félagsmenn ávalt njóta góðs af góðri afkomu og auka réttindi okkar félagsmanna í takt við afkomu hvers árs fyrir sig.

Það er afar ánægjulegt að sjá þann árangur sem núverandi stjórn hefur náð frá því hún tók við 19. nóvember 2003 en á þessum tíma hefur stjórninni tekist að byggja upp sjóði félagsins en jafnframt auka réttindi félagsmanna gríðarlega. Stjórnin er hins vegar meðvituð um það að ávalt má gera betur og það mun hún gera.

Ársreikningar félagsins liggja nú frammi á skrifstofu félagsins.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image