• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
Fréttir

Fréttir

07
Oct

Ábyrg niðurstaða tryggir launahækkanir og mikilvægar réttarbætur fyrir launafólk

Breiðfylkingin, sem samanstendur af Starfsgreinasambandi Íslands, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, hefur undirritað samkomulag við Samtök atvinnulífsins um viðbrögð við forsendubresti kjarasamninga. Niðurstaðan tryggir áframhaldandi gildi samninganna og felur í sér mikilvægar aðgerðir til að verja kjör launafólks, styrkja réttindi þess og skapa skilyrði fyrir lækkun verðbólgu og vaxta.

Allar umsamin launahækkanir sem eftir eru á samningstímanum, þar á meðal hækkanir á næsta ári, munu skila sér að fullu til launafólks.

Með þessari ábyrgu niðurstöðu tókst Breiðfylkingunni að afstýra hörðum átökum á vinnumarkaði og ná fram mikilvægum fyrirheitum um réttarbætur og sameiginlega ábyrgð á verðbólguþróuninni.

„Að mínu mati hefði verið glórulaust að stefna atvinnulífinu í harðan átakaferil við þessar aðstæður, þegar tekist hefur að ná fram öllum þessum mikilvægu fyrirheitum og tryggja að allar umsamin launahækkanir skili sér til launafólks. Nú þarf að fylgja þessari niðurstöðu eftir í verki,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambands Íslands.

Mikil fundahöld og mikilvæg aðkoma stjórnvalda

Samkomulagið náðist eftir umfangsmiklar viðræður og mikil fundahöld undanfarna daga. Vilhjálmur Birgisson og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, funduðu meðal annars tvívegis með forsætisráðherra þriðjudaginn 6. október, auk funda um liðna helgi, til að finna lausn.

Verkalýðsfélag Akraness þakkar forsætisráðherra og stjórnvöldum sérstaklega fyrir mikilvæga aðkomu að niðurstöðunni. Það var afar ánægjulegt að sjá vilja þeirra til að vinna með samningsaðilum að lausnum sem styrkja forsendur áframhaldandi kjarasamninga.

Aðkoma stjórnvalda skiptir miklu, enda fela fyrirheit þeirra í sér fjölmargar aðgerðir sem snúa að réttindum launafólks, stuðningi við barnafjölskyldur, húsnæðisöryggi og aðhaldi í gjaldskrárhækkunum.

Samningstíminn styttist um einn mánuð

Hluti niðurstöðunnar er að gildistími kjarasamninganna styttist um einn mánuð. Áætlað kostnaðarlegt umfang þeirrar breytingar fyrir atvinnulífið er um fimm milljarðar króna.

Stytting samningstímans skerðir ekki þær launahækkanir sem samið hefur verið um. Þær munu allar skila sér að fullu til launafólks.

Sameiginleg ábyrgð á lækkun verðbólgu og vaxta

Meginmarkmiðið er að ná tökum á verðbólgunni og skapa skilyrði fyrir lækkun vaxta. Til þess þarf ríkið, sveitarfélögin og fyrirtækin að axla ábyrgð með launafólki.

Í sameiginlegri yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, ASÍ, SA og Sambands íslenskra sveitarfélaga kemur meðal annars fram:

  • Ríkið mun ekki hækka krónutölugjöld sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs um meira en 2,5% árið 2027. Kílómetragjald er undanskilið vegna kerfisbreytingar á gjaldtöku ökutækja.

  • Gjaldskrár ríkisstofnana sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs munu ekki hækka umfram 2,5% árið 2027.

  • Ríkið mun beina tilmælum til fyrirtækja í sinni eigu um að halda hækkunum gjaldskráa opinberrar þjónustu sem hafa bein áhrif á vísitöluna innan 2,5%.

  • Samband íslenskra sveitarfélaga hvetur sveitarfélög til að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% árið 2027, í samræmi við ályktun landsþings sambandsins.

  • Sveitarfélög munu hvetja fyrirtæki í sinni eigu til að leita allra leiða til að halda hækkunum gjaldskráa opinberrar þjónustu sem hafa bein áhrif á vísitöluna innan 2,5%.

  • Samtök atvinnulífsins hvetja aðildarfyrirtæki sín til að leita allra leiða til að halda aftur af verðhækkunum.

Verkalýðsfélag Akraness fagnar sérstaklega aðkomu sveitarfélaganna og jákvæðum viðbrögðum þeirra við ákalli Breiðfylkingarinnar. Gjaldskrár sveitarfélaga hafa bein áhrif á útgjöld heimilanna og því skiptir þátttaka þeirra gríðarlegu máli.

Mánaðarlegir fundir til að fylgjast með verðbólguþróun

Samningsaðilar eru sammála um mikilvægi þess að fylgjast náið með þróun verðbólgunnar og fylgja markmiðum samkomulagsins eftir.

Frá og með nóvember 2026 verða haldnir mánaðarlegir fundir formanna og framkvæmdastjóra samningsaðila. Fundirnir fara fram í vikunni eftir birtingu verðbólgumælingar fyrri mánaðar.

Þessi sameiginlegi vettvangur verður nýttur til að rýna í verðbólguþróunina, einkum þróun innlendra þátta, og fylgja eftir því að allir axli sína ábyrgð á að halda aftur af verðhækkunum.

Jafnframt munu aðilar ráðast í aðgerðir til að draga úr vægi sjálfvirkra verðbreytinga. Stjórnvöld hefja einnig undirbúning að heildarsöfnun launaupplýsinga árið 2026 og tryggja fjármögnun verkefnisins frá 2027. Með því verður til heildstæðari upplýsingagrunnur um íslenskan vinnumarkað.

Févítisákvæði gegn launaþjófnaði

Lagt verður fram frumvarp eigi síðar en á vorþingi 2027 um einstaklingsbundinn rétt til févítis vegna vangreiddra lágmarkskjara samkvæmt kjarasamningum.

Með lágmarkskjörum er átt við öll laun og starfskjör sem starfsmaður á rétt á samkvæmt þeim kjarasamningi sem um starf hans gildir, meðal annars með tilliti til starfsaldurs, starfsreynslu, vinnutíma og vinnufyrirkomulags.

Þetta er afar mikilvægur áfangi í baráttunni gegn launaþjófnaði og félagslegum undirboðum. Aðgerðin styrkir stöðu launafólks og stuðlar um leið að heilbrigðari samkeppni fyrirtækja.

Lágmarkskjör falli ekki niður vegna tómlætis

Lagt verður fram frumvarp eigi síðar en á vorþingi 2027 um að lágmarkskjör launafólks falli ekki niður vegna tómlætis.

Þetta hefur lengi verið eitt af helstu baráttumálum Verkalýðsfélags Akraness. Launafólk verður að geta treyst því að réttur þess til umsaminna launa og starfskjara sé varinn og falli ekki niður vegna þess að það hafi ekki gert kröfu nægilega snemma.

Barnabætur og skerðingamörk hækka

Fjárhæðir og skerðingamörk barnabóta verða hækkuð með lagabreytingu á haustþingi 2026, í samræmi við yfirlýsingu stjórnvalda vegna kjarasamninganna frá 2024.

Þá verður lagt fram frumvarp eigi síðar en á haustþingi 2027 um að barnabætur þróist milli ára með sama hætti og þrepamörk tekjuskattskerfisins. Miðað er við að það fyrirkomulag taki gildi árið 2028.

Markmiðið er að stuðningur við barnafjölskyldur haldist stöðugur milli ára.

Aukið húsnæðisöryggi og vernd leigjenda

Stjórnvöld hafa boðað fjölþættar aðgerðir í húsnæðismálum:

  • Lagt verður fram frumvarp á haustþingi 2026 sem heimilar ríkissjóði tímabundið að fjármagna stofnframlög sveitarfélaga til almennra íbúða. Úrræðinu er ætlað að gilda út árið 2027 og styðja við hraðari uppbyggingu hagkvæms húsnæðis.

  • Forgangsregla verður framlengd út árið 2027 þannig að að minnsta kosti tveir þriðju hlutar stofnframlaga renni til íbúða fyrir tekju- og eignalága leigjendur á vinnumarkaði.

  • Við heildarendurskoðun almenna íbúðakerfisins verður sérstaklega horft til fjölgunar leiguíbúða með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði.

  • Lagt verður fram frumvarp á haustþingi 2026 um að banna mánaðarlega vísitölutengingu húsaleigu og áskilja að minnst tólf mánuðir líði milli hækkana.

  • Lagt verður fram frumvarp eigi síðar en á vorþingi 2027 um húsaleigutryggingar, með það að markmiði að styrkja réttarvernd, skýra meðferð tryggingarfjár og auka fyrirsjáanleika um endurgreiðslu þess.

  • Stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins greina þróun húsnæðisstuðnings fyrir eigendur húsnæðis. Niðurstöður eiga að liggja fyrir vorið 2027 og vinnu við nýtt húsnæðislánakerfi verður hraðað.

Sérstakar vaxtabætur ef verðbólga fer yfir viðmið

Í aðgerðalista stjórnvalda er einnig mikilvægt öryggisnet fyrir skuldsett heimili.

Mælist ársverðbólga yfir 4% í lok október 2027 verða greiddar einskiptisvaxtabætur til skuldsettra heimila í upphafi árs 2028, samtals tveir milljarðar króna. Mælist ársverðbólgan yfir 5% á sama tíma verður fjárhæðin þrír milljarðar króna.

Frekari réttarbætur og aðgerðir á vinnumarkaði

Meðal annarra aðgerða sem stjórnvöld hafa boðað eru:

  • Undirbúningur frumvarps um keðjuábyrgð í stærri verklegum framkvæmdum. Starfshópur með fulltrúum ASÍ og SA skilar drögum eigi síðar en 1. mars 2027 og stefnt er að framlagningu frumvarps haustið 2027.

  • Endurskoðun laga um Ábyrgðarsjóð launa í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins.

  • Viðbragðsáætlun gegn vaxandi atvinnuleysi fyrir lok árs 2026, með áherslu á aukinn stuðning og virkar vinnumarkaðsaðgerðir til að draga úr langtímaatvinnuleysi og koma í veg fyrir brotthvarf af vinnumarkaði.

  • Áframhaldandi vinna að örorkubótasjóði vinnumarkaðarins. Sérfræðihópur hefji störf í október 2026 og skili niðurstöðum eigi síðar en 1. mars 2027. Núverandi fyrirkomulagi og framlagi ríkisins til að jafna örorkubyrði lífeyrissjóða verður viðhaldið þar til viðunandi framtíðarlausn finnst.

  • Átak í einföldun regluverks til að létta byrðar í atvinnurekstri og draga úr kostnaðarþrýstingi. Tillögur eiga að liggja fyrir í janúar 2027.

Fyrirheitunum verður að fylgja eftir

Verkalýðsfélag Akraness fagnar þessari ábyrgu niðurstöðu og þakkar öllum sem lögðu sitt af mörkum. Félagið færir forsætisráðherra og stjórnvöldum sérstakar þakkir fyrir mikilvæga aðkomu og fjölmörg fyrirheit um aðgerðir í þágu launafólks og heimilanna.

„Morgunljóst er að launafólk getur ekki eitt axlað ábyrgðina á að ná niður verðbólgu. Aðkoma ríkisins, sveitarfélaganna og fyrirtækjanna skiptir sköpum. Með þessu samkomulagi höfum við tryggt umsamin launakjör og náð fram mikilvægum fyrirheitum. Nú þarf að fylgja þeim eftir af festu,“ segir Vilhjálmur.

„Lægri verðbólga þýðir minni verðbætur á verðtryggðar skuldir og skapar skilyrði fyrir lægri vöxtum. Það skiptir heimilin gríðarlegu máli. Markmiðið er að þessi vinna skili sér alla leið að eldhúsborðinu, í auknum kaupmætti, léttari greiðslubyrði og betri afkomu launafólks.“

18
Sep

Vel heppnað trúnaðarmannanámskeið hjá VLFA

Verkalýðsfélag Akraness hélt á dögunum tveggja daga námskeið fyrir trúnaðarmenn félagsins. Alls sátu 16 trúnaðarmenn, vítt og breitt af félagssvæði VLFA, námskeiðið sem var í umsjón Félagsmálaskóla alþýðu.

Það er skýr stefna Verkalýðsfélags Akraness að vera í góðu og öflugu sambandi við trúnaðarmenn félagsins og leggja áherslu á að efla þekkingu þeirra og getu til að sinna sínu mikilvæga hlutverki á vinnustöðunum.

Trúnaðarmenn eru gríðarlega mikilvægur hlekkur í starfsemi stéttarfélags. Þeir eru augu og eyru félagsins á vinnustöðunum og oft fyrsti aðilinn sem félagsmenn leita til þegar upp koma spurningar eða ágreiningur um kaup og kjör, réttindi eða aðbúnað.

VLFA mun því áfram leggja ríka áherslu á öflugt trúnaðarmannastarf, góða fræðslu og náið samstarf við trúnaðarmenn félagsins. Öflugir og vel upplýstir trúnaðarmenn gera félagið sterkara og betur í stakk búið til að gæta hagsmuna félagsmanna.

17
Sep

Mikilvægt að verja kjarasamningana og ná þjóðarsátt

Nú liggur fyrir að forsendur kjarasamninganna hafa brostið og framundan er afar mikilvæg ákvörðun hjá stéttarfélögunum um hvort samningum verði sagt upp eða þeir látnir halda gildi sínu. Félögin hafa til 8. október til að taka endanlega ákvörðun um uppsögn samninganna.

Formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambands Íslands hefur að undanförnu setið fjölmarga fundi vegna stöðunnar. Niðurstaða formanna aðildarfélaga SGS hefur verið skýr: leggja þarf allt kapp á að viðhalda kjarasamningunum og tryggja að þeir geti gilt út samningstímann.

En til þess þarf samstillt átak.

Formaður VLFA og SGS hefur ítrekað kallað eftir þjóðarsátt gegn verðbólgu og háum vöxtum, þar sem ríkið, sveitarfélögin, Samtök atvinnulífsins, verslun og þjónusta og allir þeir sem koma að verðmyndun skuldbinda sig til að halda aftur af hækkunum á gjaldskrám, álögum og verðlagi.

Ávinningurinn af slíku átaki getur orðið gríðarlegur. Formaður hefur bent á að ef sameiginlegt átak skilar því að verðbólga lækki úr 5,6% í 3,6%, geti ávinningur samfélagsins alls numið um 87 milljörðum króna á ársgrundvelli vegna verðbótaþáttarins eins og sér.

Þar er ekki tekið tillit til þess gríðarlega viðbótarávinnings sem heimili, fyrirtæki, ríki og sveitarfélög myndu njóta vegna lægri vaxta og minni fjármagnskostnaðar.

Þetta snýst því um miklu meira en bara framtíð kjarasamninganna. Þetta snýst um að ná verðbólgu og vöxtum niður, verja kaupmátt launafólks og skapa stöðugleika fyrir heimili og atvinnulíf.

Kjarasamningarnir voru gerðir til fjögurra ára með það að markmiði að skapa stöðugleika. Nú þurfa allir að axla ábyrgð ef tryggja á að þeir geti gilt út samningstímann.

10
Sep

Ferð eldri félagsmanna 2026

Þriðjudaginn 8. september síðastliðinn var haldið í hina árlegu ferð með eldri félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness. Að þessu sinni var ferðinni heitið á Reykjanesið og var góð þátttaka í ferðinni eða um 70 manns.

Veðrið skartaði sínu fegursta þennan dag og naut hópurinn þess vel að horfa í kringum sig á leiðinni. Hjónin Ragnheiður Hjálmarsdóttir og Rögnvaldur Einarsson sáu um leiðsögn og sögðu frá ýmsu fróðlegu og skemmtilegu sem tengdist því sem fyrir augu bar.

Fyrsti áfangastaðurinn var Skessuhellir í Keflavík en þar býr stór tröllskessa sem á uppruna sinn í sögum Herdísar Egilsdóttur. Skessan tók vel á móti gestunum sem gengu um hellinn og þeir nutu sín líka vel í sólinni fyrir utan. Þá var komið að því að borða og hélt hópurinn á veitingastaðinn Langbest í Keflavík. Þar var boðið upp á lambalæri með öllu tilheyrandi en staðurinn er rúmgóður og bjartur og mjög vel var tekið á móti okkur. Á meðan verið var að borða kíkti Ásmundur Friðriksson við en hann hefur nýlega gefið út bókina Sögur af vellinum. Þar sem hann þurfti óvænt að fara annað var ákveðið að hann kæmi síðar og héldi kynningu á bók sinni á Akranesi.

Eftir að allir höfðu fengið kaffi og kökur eftir matinn var haldið af stað aftur. Keyrt var aðeins um Ásbrúarsvæðið og svo haldið áfram í átt til Grindavíkur en farið var framhjá Höfnum og svo stoppað hjá Gunnuhver. Þar gengu flestir að útsýnispalli og eins og áður sagði var veðrið einstaklega fallegt svo það var gaman að sjá alla litina í náttúrunni þar í kring. Vegurinn upp að Gunnuhver hvar hins vegar ansi holóttur og var vel hrist upp í fólki eftir matinn.

Um kl. 14 kom hópurinn í Grindavík og var farið í menningarhúsið Kvikuna. Þar tók Kristín María á móti okkur og sagði frá ýmsu sem tengist þeim náttúruhamförum sem hafa átt sér stað í kringum bæinn undanfarin ár, stöðunni núna og framtíðarsýn Grindvíkinga. Á meðan gæddi hópurinn sér á kaffi og meðlæti. Eftir að hafa sagt frá því helsta hoppaði Kristín María upp í rútuna með hópnum og farinn var hringur um bæinn þar sem hún sýndi ýmislegt áhugavert. Stoppað var á tveimur stöðum, annars vegar hjá hrauninu sem kom inn fyrir bæjarmörkin og hins vegar hjá ljósmyndasýningunni „Reykjanes vaknar“ eftir Sigurð Ólaf Sigurðsson. Myndirnar á sýningunni eru mjög áhrifaríkar og sýna vel það sem gengið hefur á undanfarin misseri.

Kominn var tími til að kveðja Grindavík og um 16:30 var keyrt sem leið lá að Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd. Kálfatjarnarkirkja var vígð árið 1893, stór og fallega smíðuð sveitakirkja sem á þeim tíma rúmaði öll sín sóknarbörn. Árni Klemens Magnússon tók á móti hópnum í kirkjunni og sagði skemmtilega frá ýmsu tengdu henni. Að því loknu var kominn tími til að aka heim á leið eftir vel heppnaða ferð og kom hópurinn aftur á upphafsstað kl. 18:30. Þessar árlegu ferðir eru alltaf einstaklega skemmtilegar og ekki skemmir fyrir að fá svona gott veður til að njóta ferðalagsins enn betur.

Fjölmargar myndir voru teknar í ferðinni en þær munu birtast síðar þar sem myndakerfi heimasíðunnar bíður uppfærslu. 

23
Jun

Aðalfundur VLFA haldinn í gær

Aðalfundur Verkalýðsfélags Akraness var haldinn í gær þar sem farið var yfir starfsemi félagsins á liðnu ári, ársreikningar afgreiddir og breytingar á lögum félagsins samþykktar.

Á fundinum kom fram að rekstur félagsins var áfram mjög jákvæður á árinu 2025. Samstæðureikningur félagsins sýnir rúmlega 220 milljóna króna hagnað og hefur fjárhagsstaða félagsins sjaldan verið sterkari. Eigið fé félagsins nemur nú tæpum 2,9 milljörðum króna og handbært fé rúmum 2,4 milljörðum króna.

Fjárhagslegur styrkur félagsins endurspeglar traustan rekstur og ábyrga fjármálastjórn um leið og hann skapar mikilvægan grunn fyrir áframhaldandi hagsmunabaráttu, öfluga þjónustu við félagsfólk og sterka stöðu sjóða félagsins til framtíðar.

Á fundinum var jafnframt lögð áhersla á að styrkur Verkalýðsfélags Akraness felist ekki aðeins í sterkri fjárhagsstöðu heldur einnig í öflugu félagsstarfi, virkri þátttöku félagsmanna og öflugri hagsmunagæslu fyrir launafólk á félagssvæðinu. Félagið stendur því sterkt bæði félagslega og fjárhagslega.

Aðalfundurinn samþykkti einnig breytingar á lögum félagsins. Markmið breytinganna er að færa lög félagsins nær nútímanum, skýra einstök ákvæði og tryggja að umgjörð starfseminnar taki mið af þeim breytingum sem orðið hafa á samfélagi, vinnumarkaði og starfsháttum verkalýðshreyfingarinnar á síðustu árum.

Stjórn, trúnaðarmönnum og starfsfólki félagsins voru færðar þakkir fyrir góð störf á liðnu ári, auk þess sem félagsfólki var þakkaður stuðningur þess og þátttaka í starfi félagsins.

08
Jun

Sjómannadagurinn 2026

Verkalýðsfélag Akraness óskar öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með daginn. Lagður var blómsveigur að minningarreit um týnda sjómenn í kirkjugarðinum á Akranesi og við guðsþjónustu í Akraneskirkju voru íslenskum sjómönnum þökkuð mikilvæg störf við oft og tíðum krefjandi aðstæður. Í guðsþjónustunni voru heiðraðir þeir Erling Þór Pálsson og Haraldur Jónsson, fyrrum sjómenn, fyrir störf sín til sjós. Að lokinni guðsþjónustu var lagður blómsveigur að styttu sjómannsins á Akratorgi en styttan var reist til minningar um látna sjómenn. Sjómannadagurinn er mikilvægur hátíðisdagur, bæði til að minnast þeirra sem hafa í gegnum árin og áratugina stundað sjóinn sem og til að þakka þeim sem sinna enn þessari mikilvægu starfsgrein. Sjómenn eiga stóran sess í sögu þjóðarinnar en það er Verkalýðsfélag Akraness sem stendur fyrir þessum dagskrálið ásamt sóknarpresti Akraneskirkju.

27
May

Orlofsuppbót 2026

Við minnum félagsmenn á orlofsuppbót - Skv. kjarasamningum er orlofsuppbót greidd af atvinnurekanda.

1. júní almennur kjarasamningur 

Allir starfsmenn sem hafa verið í starfi í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl eða eru í starfi fyrstu viku í maí eiga rétt á orlofsuppbót.

Full orlofsuppbót er miðuð við 45 unnar vikur eða meira (utan orlofs) á tímabilinu 1. maí til 30. apríl.

Upphæðin skerðist í samræmi við starfshlutfall og starfstíma.

1. júní kjarasamningur við ríkið

Allir starfsmenn sem eru í starfi til 30. apríl næst á undan fá greidda orlofsuppbót. Þeir sem hafa starfað 13 vikur samfellt á orlofsárinu fá greidda orlofsuppbót.

Greitt er hlutfallslega m.v. starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu. 

1. maí kjarasamningur við sveitarfélög

Allir starfsmenn eiga rétt á greiðslu persónuuppbóta. Full persónuuppbót er m.v. 100% starfhlutfall.

Aðrir sem eru í minna starfhlutfalli eða hafa starfað hluta úr ári eiga að fá greitt hlutfallslega af fullri persónuuppbót m.v. starfhlutfall og starfstíma.

Nánari upplýsingar Kjaramál 

29
Apr

1. maí á Akranesi

Föstudaginn 1. maí ætlum við ásamt fleiri félögum að gera okkur glaðan dag og við hvetjum alla til að mæta og njóta !

Dagskrá félagsins þann 1. maí  er eftirfarandi:

1. maí 2026 
Verkalýðsfélag Akraness, VR, FIT, Kennarasamband Íslands, Sjúkraliðafélag Íslands og Sameyki standa fyrir dagskrá á baráttudegi verkalýðsins 1. maí á Akranesi.
Slagorð baráttudagsins í ár er Styrkur okkar er velferð allra.
Klukkan 14:00  fer af stað kröfuganga frá Þjóðbraut 1, trommusveit TOSKA undir stjórn Heiðrúnar Hámundar leiðir gönguna.
Hátíðar- og baráttufundur í sal eldri borgara, Dalbraut 4, að göngu lokinni. 
Hátíðarræðu flytur Elín Theodóra Reynisdóttir  og kvennakórinn Ymur flytur nokkur lög.
Að dagskrá lokinni verður boðið upp á kaffi og kökur að hætti kórfélaga.
Allir velkomnir
Kl. 15:30 verður bíó fyrir börn í Bíóhöllinni -Super Mario Galaxy movie ( ísl.tal) ath. númeruð sæti.
 
Sjáumst sem flest :)  
 
 

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image