• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
29
Nov

Verkalýðsfélag Akraness lýsir furðu sinni á ummælum Hjörleifs Jónssonar í fréttablaðinu á sunnudaginn sl.

Á forsíðu fréttablaðsins á sunnudaginn sl. var vitnað í eiganda fyrirtækisins sem sætir rannsókn lögreglu vegna gruns um að vera með ólöglegt vinnuafl að störfum og einnig gruns um að greiða laun langt undir gildandi kjarasamningum.  Verklýðsfélag Akraness lýsir furðu sinni á ummælum eiganda fyrirtækisins í blaðinu á sunnudaginn sl.  En þar segir Hjörleifur Jónsson að afskipti yfirvalda og Verkalýðsfélags Akraness vegna þeirra erlendu starfsmanna sem hjá honum starfa sé með öllu óviðunandi.  Einnig segir Hjörleifur að ekkert muni koma útúr þessari rannsókn því ekkert sé óeðlilegt við kjör sinna starfsmanna.  Verkalýðsfélagi Akraness er vart hlátur í huga yfir þessum ummælum, en vill benda á að stéttarfélagið hefur gögn og upplýsingar undir höndum sem staðfestir að fyrirtæki Hjörleifs Jónssonar er ekki að greiða þau laun sem ráðningarsamningar Litháana kveða á um.  Gögn sýna tb. að einum Litháanum sem starfar hjá Hjörleifi Jónssyni vantar allt að 300 þúsund krónur í laun fyrir einn mánuð miðað við vinnustundafjölda í umræddum mánuði.  Ef Hjörleifur Jónsson telur að hann hafi ekkert að fela í ljósi þessara staðreynda, að það vanti tb. uppá laun eins starfsmannsins sem nemur tæpum 300 þúsund krónum á einum mánuði, þá hvað.   Málið er enn í rannsókn hjá lögreglunni á Akranesi og hefur lögreglan fengið gögn frá Verkalýðsfélagi Akraness sem sýnir og staðfestir að töluvert vantar uppá að Litháunum sé greidd laun eftir þeim ráðningarsamningum sem atvinnuleyfi mannanna voru veitt út á á sínum tíma.     Í ljósi alls þessa eru ummæli Hjörleifs Jónssonar í fréttablaðinu á sunndaginn afar undarleg svo ekki sé fastar að orði kveðið.  Þeir atvinnurekendur sem ekki fara eftir þeim leikreglum sem gilda á íslenskum vinnumarkaði eiga að hafa vit á því að skammast sín.   Verkalýðsfélag Akraness mun gera ítarlega grein fyrir þessu máli hér heimasíðunni á fimmtudaginn nk.

26
Nov

Formaður félagsins fundaði með Litháunum sem starfa hjá fyrirtækinu sem sætir rannsókn lögreglu

Formaður Verkalýðfélags Akraness fundaði með erlendu starfsmönnunum sem starfa hjá fyrirtækinu sem sætir rannsókn lögreglu vegna gruns um brot á atvinnuréttindum útlendinga.  Fundurinn var á fimmtudaginn sl,   túlkur kom formanni félagsins til aðstoðar en erlendu starfsmennirnir koma allir frá Litháen.  Verklýðsfélag Akraness óskaði eftir því við lögregluna á Akranesi að hún rannsakaði hvort allir starfsmennirnir væru með tilskilin leyfi til að starfa hér á landi, en félagið hafði vísbendingar um að nokkrir væru ekki með atvinnuleyfi.   Einnig hafði félagið mjög svo sterkar grunsemdir um að ekki væri verið að greiða starfsmönnum laun samkvæmt þeim ráðningarsamningum sem lagðir voru fram með umsóknum um atvinnuleyfi fyrir  starfsmennina.  Fundurinn með erlendu starfsmönnum var afar gagnlegur og er félagið að vinna úrúr þeim upplýsingum sem fram komu á fundinum.  Fram kom í máli starfsmannanna að þeir hafa tb. ekki séð launaseðil frá því þeir hófu störf hér á landi, en sumir erlendu starfsmannanna hafa starfað hér í þó nokkur ár.    Einnig kom fram hjá hjá Litháunum að mjög mikil vinna hafi verið síðustu þrjá til fjóra mánuði og hefur komið fyrir að nokkrir starfsmenn hafi unnið yfir 300 vinnustundir á mánuði.  Verkalýðsfélag Akraness telur að miðað við þau gögn og þær upplýsingar sem liggja fyrir sýni  klárlega að  töluvert vanti upp á að Litháunum sé greidd laun eins og ráðningarsamningur mannanna kveði á um.  Jafnvel sem nemur tvö til þrjú hundruð þúsund krónur á einum mánuði hjá einstaka starfsmanni.  Eitt er víst að Verkalýðsfélag Akraness mun fylgja þessu máli eftir af fullum þunga.  Væntanlega munu mál Litháana skýrast endanlega í næstu viku. 

23
Nov

Verkalýðsfélag Akraness mótmælir harðlega fyrirhugaðri skerðingu á starfsemi lögreglunar á Akranesi

Stjórn Verklaýðsfélags Akraness hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun vegna fyrirhugaðar skerðingar á löggæslu á Akranesi.

Ályktun

Akranesi 23. nóvember 2005

 

Stjórn Verkalýðsfélags Akraness mótmælir harðlega fyrirhugaðri skerðingu á starfsemi lögreglunnar á Akranesi. Telur stjórnin varhugavert með hliðsjón af stærð bæjarfélagsins að flytja rannsókn mála í annað umdæmi.  

Samskipti félagsins við lögregluyfirvöld í Borgarnesi vegna atvika á starfssvæði félagsins á Grundartanga styrkja þessa skoðun. 

Telur stjórn félagsins mun eðlilegra að starfsemi lögreglunnar á Akranesi verði efld og umdæmi hennar stækkað og látið m.a. ná til Grundartanga, en mikill meiri hluti þeirra sem þar starfa búa á Akranesi.

Það er mat stjórnar félagsins að tillögur um skerðingu á löggæslu á Akranesi sé mjög svo óeðlilegt.  Sé tekið mið af því að í næsta nágreni við umdæmi lögreglunar á Akranesi er mesta umferðarsvæði landsins bæði á sjó og landi.  Einnig hefur á síðustu árum orðið gríðarleg aukin á allri starfsemi á stóriðjusvæðinu á Grundartanga.

Stjórn Verkalýðsfélag Akraness skorar á dómsmálaráðherra sem og þingmenn Norðurvesturkjördæmis að tryggja að fyrirhuguð skerðing á löggæslumálum Akurnesinga verði ekki að veruleika. 

Einnig skorar stjórn Verkalýðsfélag Akraness á dómsmálaráðherra og þingmenn Norðurvesturkjördæmis að beita sér fyrir því að lögreglan á Akranesi verði efld til muna og umdæmi hennar stækkað.

F.h stjórnar, Verkalýðsfélags Akraness

______________________________________

Vilhjálmur Birgisson, formaður

22
Nov

Lögreglan á Akranesi hefur kallað eftir launaseðlum og vinnustundafjölda erlendu starfmannanna !

Rannsókninni á fyrirtækinu hér á Akranesi sem er með erlenda starfsmenn frá Litháen miðar vel áfram.  Verkalýðsfélag Akraness hafði mjög svo rökstuddan grun um að hluti starfsmannanna væru ekki með atvinnuleyfi til að starfa hér á landi.  Í rannsókninni í gær og í dag var sá grunur staðfestur. Það eru að minnsta kosti tveir Litháana sem ekki voru með tilskilin leyfi til að starfa hér á landi .  Einnig hefur Verkalýðsfélag Akraness sterkar vísbendingar um að erlendu starfsmönnunum séu ekki  greidd þau laun sem kveðið er á um í ráðningarsamningum sem atvinnuleyfin voru veitt út á, og vantar þar verulega upp á.  Er þessi þáttur málsins nú í rannsókn hjá lögreglunni og hefur lögreglan verið að afla sér gagna eins og launaseðla og tímaskriftir starfsmannanna.  Einnig hafa erlendu starfsmennirnir sem ekki voru með atvinnuleyfi verið teknir í skýrslutöku og kom túlkur frá Reykjavík til að aðstoða lögregluna við þá vinnu.  Verkalýðsfélag Akraness mun greina mjög ítarlega frá niðurstöðu rannsóknarinnar um leið og henni lýkur.  Það er stefna stjórnar Verkalýðsfélags Akraness að taka mál af þessum toga af fullri hörku og það mun félagið gera.  Því allur íslenskur vinnumarkaður er í húfi.  Enn og aftur vill Verkalýðsfélag Akraness hrósa sýslumanninum á Akranesi sem og lögreglunni fyrir að taka jafn vel á málinu og raunin er.  Það mættu fleiri sýslumenn þessa lands taka þessi vinnubrögð sýslumannsins á Akranesi sér til fyrirmyndar.   Vegna þess að stéttarfélögin verða að fá aðstoð frá lögreglunni við að koma í veg fyrir að einstaka atvinnurekendur komist upp með svíkja og pretta erlent vinnuafl.  Þessi svik og undirboð á erlendu vinnuafli  grafa undan þeim kjörum sem íslensk verkafólk hefur áunnið sér inn á liðnum áratugum og einnig því velferðarkerfi sem við höfum komið okkur upp.  Þeim atvinnurekendum sem ógna íslenskum vinnumarkaði með þessum hætti á að draga fyrir dómstóla og láta þá klárlega svara til saka. 

21
Nov

Víðtæk rannsókn hófst í morgun á fyrirtæki á Akranesi sem er með erlenda starfsmenn í vinnu !

Verkalýðsfélag Akraness óskaði eftir því við lögregluna á Akranesi að hefja rannsókn á fyrirtæki sem hefur erlenda starfsmenn í sinni þjónustu.  Erlendu starfsmennirnir sem umræðir koma frá Litháen og hafa starfað hér um all langt skeið.  Stéttarfélagið hefur rökstuddan grun um að hluti starfsmannanna séu að starfa hér án atvinnuleyfa og einnig hefur félagið grundsemdir um að starfsmönnunum sé greidd laun langt undir þeim ráðningarsamningum sem atvinnuleyfin voru veitt út á.  Víðtæk rannsókn lögreglunar á Akranesi hófst í morgun og mun halda áfram strax í fyrramálið.  Verkalýðsfélag Akraness getur ekki tjáð sig ítarlega um málið að svo stöddu  þar sem rannsóknin er á frumstigi, en margt bendir til að málefni þessa fyrirtækis séu langt í frá að vera í lagi.  Verkalýðsfélag Akraness getur ekki annað en hrósað lögreglunni á Akranesi fyrir skjót viðbrögð í þessu máli. 

19
Nov

Málefni allra pólsku starfsmannanna sem starfa á félagsvæði Verkalýðsfélags Akraness og komu í gegnum starfsmannaleigunnar 2b hafa verið leyst !

Fagsmíði ehf. hefur sótt um atvinnuleyfi fyrir tvo pólverja sem eru í starfi hjá fyrirtækinu, en þeir komu hingað í gegnum starfsmannaleiguna 2b.  Þessi leið sem Fagsmíði fer nú er sú sama og Ístak gerði fyrir um tveimur vikum gagnvart þeim pólverjum sem starfa hjá fyrirtækinu.  Nú hefur öllum þeim pólverjum sem hingað komu til starfa á vegum starfsmannleigunnar 2b og starfa á félagssvæði Verkalýðsfélags Akraness verið komið í beint ráðningarsamband við þau fyrirtæki sem pólverjarnir starfa hjá.  Verkalýðsfélag Akraness fagnar að tekist hafi að leysa málefni pólsku starfsmannanna með þessum hætti.  Verkalýðsfélag Akraness er nú með til skoðunar enn eitt fyrirtækið sem er með erlenda starfsmenn að störfum en margt bendir til að ekki sé allt með felldu hvað varðar atvinnuleyfi og launakjör þeirra starfsmanna. 

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image