• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
12
Feb

Dómur kveðinn upp í svokölluðu Hvalsmáli – VLFA fagnar mikilvægum hlutasigri

Í morgun var kveðinn upp dómur í svokölluðu Hvalsmáli sem snýr að ákvörðun fyrrverandi matvælaráðherra, Svandísar Svavarsdóttur, sumarið 2023 um að flauta af hvalveiðivertíðina þrátt fyrir að starfsmenn væru þegar mættir til vinnu og búnir að ráða sig á vertíðina.

Eins og komið hefur fram áður taldi umboðsmaður Alþingis að ákvörðun ráðherrans hefði hvorki staðist ákvæði stjórnsýslulaga né stjórnarskrár. Verkalýðsfélag Akraness lýsti því strax yfir að félagið myndi láta reyna á það fyrir dómstólum hvaða rétt starfsmenn hefðu vegna þess mikla tekjutaps sem þeir urðu fyrir vegna ákvörðunarinnar.

Í kjölfarið ákvað Verkalýðsfélag Akraness að fara með fjögur prófmál fyrir dómstóla fyrir hönd félagsmanna sinna. Í málunum var þess krafist að fyrirtækið Hvalur greiddi starfsmönnunum það fjárhagslega tjón sem þeir urðu fyrir vegna ákvörðunar fyrrverandi matvælaráðherra, Svandísar Svavarsdóttur, enda höfðu þeir þegar ráðið sig til starfa á vertíð sem jafnan skilar starfsmönnum mjög góðum tekjumöguleikum þar sem unnið er allan sólarhringinn á vöktum.

Niðurstaða dómsins varð sú að málið vannst að hluta. Tveimur af fjórum starfsmönnum var dæmdur réttur til mánaðar uppsagnarfrests, miðað við þær tekjur sem vaktir á hvalvertíðinni hefðu skilað þeim. Þeim voru hvorum um sig dæmdar 2,1 milljón króna í bætur auk dráttarvaxta. Hvalur var hins vegar sýknaður af kröfum tveggja starfsmanna þar sem þeir voru að koma á sína fyrstu hvalvertíð og taldi dómurinn að þeir ættu því ekki rétt á uppsagnarfresti með sama hætti og starfsmenn sem áður höfðu starfað á hvalvertíð.

Verkalýðsfélag Akraness telur niðurstöðuna vera mikilvægan sigur, þótt félagið hefði vissulega viljað að dómurinn hefði tekið tillit til alls þess tímabils sem vertíðin átti að standa yfir og að allir þeir starfsmenn sem höfðu ráðið sig til vinnu hefðu fengið það tekjutap sem þeir urðu fyrir bætt. Ljóst er að meirihluti þeirra starfsmanna sem ráðnir voru á hvalvertíðina 2023 höfðu áður starfað hjá Hval og eiga því, samkvæmt dómsniðurstöðunni, rétt á greiðslu uppsagnarfrests.

Það er hins vegar sorglegt og með öllu óásættanlegt að stjórnmálamenn geti brotið lög og reglur til að knýja í gegn eigin pólitískar skoðanir, líkt og Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi matvælaráðherra, gerði í þessu máli, án þess að þurfa að axla nokkra persónulega ábyrgð. Sú valdníðsla sem hér átti sér stað, þar sem ákvörðun var tekin í trássi við stjórnsýslulög og stjórnarskrá, hafði gríðarlegar afleiðingar fyrir launafólk sem missti af tekjum sem það hafði fullan réttmætan grunn til að treysta á.

Það er með ólíkindum að ráðherrar geti misbeitt valdi sínu með þessum hætti, valdið starfsmönnum og fyrirtækjum verulegu fjárhagslegu tjóni og síðan gengið frá borði án þess að bera persónulega ábyrgð á gjörðum sínum. Slík stjórnsýsla grefur undan réttarríkinu, trausti almennings á stjórnvöldum og þeirri grundvallarreglu að enginn sé hafinn yfir lög.

Vonandi læra stjórnvöld og Alþingi af þessu máli. Það sem hér átti sér stað er svartur blettur á framkvæmdavaldinu og skýr áminning um hversu mikilvægt er að virða lög, reglur og réttindi launafólks – óháð pólitískum skoðunum hverju sinni.

Málinu er þó ekki lokið. Verkalýðsfélag Akraness hyggst áfrýja þeim hluta dómsins sem laut að starfsmönnunum tveimur sem ekki höfðu áður starfað á hvalvertíð og Hvalur var sýknaður gagnvart. Jafnframt er talið öruggt að Hvalur muni áfrýja þeim hluta málsins sem félagið tapaði. Málin munu því halda áfram fyrir Landsrétti.

Það sem stendur upp úr er að fyrrverandi matvælaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, með ákvörðun sinni sem síðar hefur verið talin ólögmæt, hefur að öllum líkindum skapað íslenskum skattgreiðendum umtalsverða skaðabótaskyldu. Fyrir liggur að Hvalur hyggst sækja bætur á hendur íslenska ríkinu vegna þess fjárhagslega tjóns sem fyrirtækið varð fyrir, auk þess sem ákvörðunin hafði veruleg áhrif á afkomu starfsmanna sem misstu af miklum tekjum.

Þessi niðurstaða sýnir skýrt að Verkalýðsfélag Akraness stendur þétt við bakið á félagsmönnum sínum og er reiðubúið að fara alla leið til að verja réttindi þeirra. Hér má sjá dóminn varðandi þann hluta sem vannst og hér er dómurinn þar sem Hvalur var sýknaður. 

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image