• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
13
Jun

Fátt getur komið í veg að skrifað verði undir nýjan kjarasamning við Klafa á morgun

Fátt getur komið í veg fyrir að undirritað verði undir nýjan kjarasamning fyrir starfsmenn Klafa á morgun.  Samningsaðilar funduðu í dag og komust að samkomulagi með framkvæmdina á nýja bónuskerfinu.  Það sem verður gert á morgun er að aðilar ætla að lesa saman yfir ný samningstextan.  Komi ekkert óvænt uppá  í þeim yfirlestri þá munu  samningsaðilar skrifa undir nýjan kjarasamning

10
Jun

Ekki tókst að ganga frá nýjum kjarasamningi fyrir starfsmenn Klafa í dag

Ekki tókst að klára nýjan kjarasamning í dag fyrir starfsmenn Klafa eins og vonir stóðu til.  Samningsaðilar funduðu samfellt í 7 klukkustundir og voru aðilar sammála um að fresta viðræðum fram á mánudag.  Þar sem ljóst var orðið að samningsaðilar myndu ekki ná að klára þá vinnu sem eftir væri.  Það reyndist mun tímafrekara að samræma þann samningstexta sem verður í hinum nýja kjarasamningi Klafa, heldur en samningsaðilar reiknuðu með.  Eru aðilar sammála um að gefa sé þann tíma sem þarf, og að vanda þurfi þessa vinnu eins og kostur er.  Einnig tafði það töluvert fyrir í dag að upp kom ágreiningur um hvernig fyrirkomulagið á hinu nýja bónuskerfi skuli vera.   Vonandi mun takast að  leysa þann ágreining strax eftir helgi, það er alla vega von Verkalýðsfélags Akraness.  Samningsaðilar ætla að funda strax eftir helgi og vonir standa til að hægt verði að landa nýjum samningi á mánudaginn n.k.

09
Jun

Hugsanlega tekst að skrifa undir nýjan kjarasamning fyrir starfsmenn Klafa á morgun

Allt útlit er fyrir að skrifað verði undir nýjan kjarasamning við forsvarsmenn Klafa á morgun.  Lausn er komin á þessu eina atriði sem hefur staðið í vegi fyrir því að hægt hafi verið ganga frá nýjum kjarasamningi.  Samningsaðilar ætla að hittast kl 10:00 í fyrramálið og ganga endanlega frá samningstextanum.  Hugsanlega getur sú vinna tafið undirskriftina á nýjum kjarasamningi eitthvað.  Starfsmenn Klafa unnu eftir kjarasamningi Íslenska járnblendifélagsins 

 

en núna hefur verið gerður sjálfstæður samningur sem nær eingöngu yfir starfsmenn Klafa.  Samt sem áður byggist nýi kjarasamningur Klafa nánast  alfarið á kjarasamningi Íslenska járnblendifélagsins.  Innihald samningsins verður birt hér á heimasíðunni um leið og gengið hefur verið frá samningnum.

08
Jun

Vart mun takast að klára nýjan kjarasamning fyrir helgi fyrir starfsmenn Klafa

Allt útlit er fyrir að ekki takist að ganga frá nýjum kjarasamningi fyrir starfsmenn Klafa fyrir helgi.  Eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni þá ríkti töluverð bjartsýni hjá formanni félagsins að það myndi takast að klára nýjan samning fyrir helgi.  Ljóst er að það var of mikil bjartsýni.  Það er enn ágreiningur um eitt atriði sem því miður kemur í veg fyrir að hægt sé að ganga frá nýjum samningi.  Verkalýðsfélag Akraness lagði fram tillögu til lausnar á þessu eina  atriði sem útaf stendur og var allt útlit fyrir í gær að aðilar væru að ná  saman.  Því miður kom bakslag í dag þar sem forsvarsmenn Klafa höfnuðu tillögu félagsins.  Er félagið því að láta lögmann félagsins skoða tillögu sem forsvarsmenn Klafa lögðu fram til lausnar á þessari deilu.   Túlkun lögmanns félagsins á þessari tillögu forsvarsmanna Klafa mun ráða úrslitum hvort félagið mun samþykkja eða synja tillögunni.  Ef tillögunni verður hafnað mun félagið  vísa deilunni til sáttasemjara fyrir helgi.  Formaður félagsins hefur boðað trúnaðarmann Klafa til fundar í fyrramálið þar sem staðan verður metin.

07
Jun

Góður kynningarfundur sem Laugarfiskur hélt með bæjarbúum

Kynningafundur á vegum forsvarsmanna Laugafisks var haldinn í dag og hófst fundurinn kl 17:30.  Tilgangur með fundinum var að  kynna fyrir bæjarbúum hvað fyrirtækið hefur verið að gera til að sporna við þeirri lyktarmengun sem hefur verið að angra þá sem búa í næsta nágrenni við fyrirtækið.   Það voru viss vonbrigði hvað fáir sáu sér fært að mæta á fundinn en heildarfjöldi fundarmanna var 17 og þar af voru fulltrúar frá fyrirtækinu 5.  Verkalýðsfélag Akraness telur samt sem áður að fundurinn hafi verið afar gagnlegur og  voru allir fundarmenn sammála um að sameinast í að finna lausn á vandamálinu.  Ekki er ólíklegt að boðað verði til annars kynningafundar í haust þegar þær rannsóknir sem fyrirtækið er að láta vinna að liggja fyrir.   Eftir fundinn fóru allir sem voru á fundinum  niður að fyrirtækinu til að kanna hvor einhver lyktmengun væri til staðar þessa stundina, og reyndist svo ekki vera í þetta sinn.

07
Jun

Allt útlit er fyrir að skrifað verði undir nýjan kjarasamning við forsvarsmenn Klafa fyrir helgi

Allt bendir til að gengið verði frá nýjum kjarasamningi við forsvarsmenn Klafa fyrir helgi.  Útlit er að samkomulag náist um atriðið sem hefur staðið í vegi fyrir að hægt sé að ganga frá nýjum kjarasamningi.  Formaður félagsins mun funda með forsvarsmönnum Klafa á morgun þar sem gengið verður endalega frá þessu atriði.  Ef ekkert  óvænt kemur upp á þá er líklegt að gengið verði frá nýjum samningi fyrir helgi.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image