• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15

Úthlutunarreglur

Á sumrin eru orlofshús félagsins leigð félagsmönnum til vikudvalar í senn, en á öðrum tímum eftir samkomulagi.  Úthlutun að sumri til fer eftir sérstöku punktakerfi og eru reglur um ávinnslu og frádrátt punkta eftirfarandi:

Hver félagsmaður sem greiðir félagsgjald ávinnur sér einn punkt fyrir hvern mánuð, þ.e. getur mest fengið 12 punkta á ári.  Gjaldfrjálsir félagsmenn, þ.e. lífeyrisþegar fá gefins frá félaginu hálfan punkt fyrir hvern mánuð, þ.e. mest 6 punkta á ári.

Þegar félagsmaður fær úthlutað orlofshúsi á sumarvertíð þá eru dregnir frá punktainneign hans 24 punktar fyrir vikur nr. 1-3 og vikur nr. 12-15, en 36 punktar fyrir vikur nr. 4-11.  Við úthlutun á öðrum tímum koma engir punktar til frádráttar.

Ef fleiri en ein umsókn er um sama húsið sömu vikuna ræður punktainneign félagsmanns því hver hreppir húsið í það skiptið.  Ef punktafjöldi þeirra er jafn fær sá umsækjandi sem er eldri úthlutað. Á umsóknareyðublöðum um orlofshús er gefinn kostur á allt að sex valmöguleikum.  Því fleiri valkosti sem merkt er við, þeim mun meiri líkur eru á úthlutun.  Eins og áður segir skerðir vetrarúthlutun ekki rétt til sumarúthlutunar.

Yfir vetrartímann (sept-maí) eru orlofshúsin til útleigu frá kl. 16 á föstudegi til kl. 13 á mánudegi. Einnig er hægt er að bæta við auka nótt og/eða leigja staka daga.

 

uppfært í des. 2023

Upplýsingar um laus orlofshús er að finna á félagavefnum

Félagavefur

Félagavefur

Á félagavefnum er mögulegt að skoða iðgjaldasögu, punktastöðu, greiðslusögu vegna bóta og styrkja og úthlutunarsögu vegna orlofshúsa.

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image