• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
26
May

Viðræður við SA um nýjan bræðslusamning að hefjast

Formaður félagsins ásamt þremur starfsmönnum síldarbræðslunnar munu funda í húsakynnum ríkissáttasemjara á föstudaginn kl 13:00.  Þar munu hefjast viðræður um  nýjan kjarasamning fyrir þá starfsmenn sem vinna í síldarbræðslunni hjá HB-Granda.

26
May

Fundur í stjórn og trúnaðarráði

Dagskrá fundarins var staðan í samningamálum félagsins. Mestur tími fór í að ræða þá stöðu sem upp er komin í ríkissamningum, en eins og fram kemur hér á heimasíðunni var ríkissamningurinn felldur í gær. Ennfremur voru sjómannasamningarnir til umræðu, kom fram í máli formanns að ríkissáttasemjari hefur ákveðið að kalla samninganefndir deiluaðila ekki saman fyrr enn í ágúst, Kjarasamningur samiðnar var líka til umræðu sem og nýgerður vaktasamningur við HB-Granda

25
May

Samningur Starfsgreinasambandsins við ríkið samþykktur í öllum félögum nema tveim

Niðurstaða atkvæðagreiðslu um kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands annars vegar og fjármálaráherra f.h. ríkissjóðs hins vegar, sem undirritaður var 7. apríl 2004 liggur nú fyrir. Á kjörskrá voru 2134 en 33% greiddu atkvæði um samninginn í öllum félögunum, þannig að 81,3% samþykktu hann en 18% greiddu atkvæði gegn samningnum. 0,7% atkvæða voru auð eða ógild. Samningurinn er því samþykktur í öllum viðkomandi aðildarfélögum sambandsins sem málið varðar, nema hjá Verkalýðsfélagi Akraness og hjá Verkalýðsfélaginu Vöku, Siglufirði. Á Akranesi greiddu 32 félagsmenn atkvæði eða 40%. Af þeim sem greiddu atkvæði höfnuðu 28 samningnum eða 87,5%. Á Siglufirði greiddu 17 atkvæði um samninginn eða 41,5% en þar höfnuðu 16 samningnum eða 94,1%

Hjá stærstu félögum SGS, var samningurinn samþykktu með miklum mun: 92,4% hjá Eflingu- stéttarfélagi í Reykjavík, 96% hjá Einingu Iðju á Akureyri, 72% í Keflavík og í Grindavík, en þar var talið saman og 93% á Selfossi.

kranesi, höfnuðu 28 samningnum eða 87,5%. Á Siglufirði greiddu 17 atkvæði um samninginn eða 41,5% en þar höfnuðu 16 samningnum eða 94,1%

 

Hjá stærstu félögum SGS, var samningurinn samþykktu með miklum mun: 92,4% hjá Eflingu- stéttarfélagi í Reykjavík, 96% hjá Einingu Iðju á Akureyri, 72% í Keflavík og í Grindavík, en þar var talið saman og 93% á Selfossi.

25
May

Samiðnar samningurinn samþykktur

Í gær lauk atkvæðagreiðslu um kjarasamning Samiðnar við Samtök atvinnulífsins. Á kjörskrá voru 80 félagsmenn, 8 eða 10% greiddu atkvæði. JÁ sögðu 8 (100%)  Kjarasamningurinn er því samþykktur hjá Verkalýðsfélagi Akraness.

25
May

Ríkissamningurinn felldur á fundi í gærkveldi

Á kynningarfundi í gær var ríkissamningurinn borinn upp til atkvæðagreiðslu, eftir að Snær Karlsson frá SGS hafði farið yfir helstu atriði samningsins, og svarað spurningum frá félagsmönnum. Ennfremur kynnti formaður félagsins nýgerðan stofnanasamning sem samráðsnefnd Verklýðsfélags Akraness hefði undirritað í gær. Það kom skýrt fram hjá starfsmönnum SHA sem tóku til máls á fundinum að þeir teldu að það hefði verið meginmarkmið hjá samningarnefnd SGS að færa kjaraumhverfi okkar félagsmanna nær því sem er að gerast hjá starfsmönnum ríkisins. Það er mat starfsmanna SHA að svo sé alls ekki um að ræða í þessum samningi og enn sé töluverður launamunur á milli okkar félagsmanna og þeirra sem starfa hjá ríkinu.

Í lok fundarins var kosið um ríkissamninginn, á kjörskrá voru 80 félagsmenn, alls kusu 32 félagsmenn. 28 sögðu nei og 4 sögðu já. Ríkissamningurinn var því felldur með afgerandi hætti. Kom fram í máli formanns félagsins þegar úrslit kosninganna lágu fyrir, að hann harmaði að sú mikla samstaða sem var búin að skapast hjá aðildarfélögum SGS væri því miður ekki lengur til staðar, og taldi formaður félagsins að á brattann yrði að sækja með frekari kjarabætur. Lýsti formaðurinn yfir mikilli ánægju með þá miklu samstöðu sem ríkir meðal starfsmanna SHA í þessu máli og með hana að vopni er vonandi allt hægt.

21
May

Félagsfundur um ríkissamninginn

Kynningarfundur um ríkissamninginn. verður haldinn mánudaginn 25. maí kl 20:00, að kirkjubraut 40, 3. hæð.

 

Dagskrá 

1.     Snær Karlsson frá SGS kemur og kynnir ríkissamninginn

2.     Kynntur verður stofnanasamningur við starfsmenn SHA.

3.     Kosningar-kosið verður um ríkissamninginn.

4.     Önnur mál.

 

Þeir félagsmenn sem vinna eftir ríkissamningum eru eindregið hvattir til að mæta.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image