• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
Image

Illugastaðir, Fnjóskadal

Sumarið 2024 stendur félagsmönnum Verkalýðsfélags Akraness til boða að sækja um orlofshús í orlofsbyggðinni Illugastöðum, Fnjóskadal. Orlofsbyggðin er á milli Akureyrar og Húsavíkur. (ca. 30 mín akstur frá Akureyri).

Framsýn, stéttarfélag Þingeyinga á þar 48 m2 orlofshús. Í húsinu er tvö svefnherbergi, annað með hjónarúmi og hitt með tveim kojum. Í stofu er svefnsófi.

Við húsið er góð verönd með heitum potti. 

Á Illugastöðum er gott leiksvæði fyrir alla fjölskylduna og sundlaug með heitum pottum.

Upplýsingasíða: Illugastaðir í fögrum fjallasal

Með leigu á orlofseigninni fylgir 2x WC rúllur, 2x viskastykki, 3x borðklútar og 1x gólfmoppa. Tauið kemur í fjölnota poka og á að skila tauinu í sama poka við brottför. Ef leigutaki telur þetta ekki nægja, þarf hann að taka með sér það sem þarf til viðbótar.

 

Image
Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image