Ásendi 10, Húsafelli
Bústaðurinn er 43 m2 með tveimur svefnherbergjum og svefnlofti. Í hvoru svefnherbergi eru nýleg hjónarúm og á svefnlofti eru aukadýnur. Að auki er barnarúm í öðru svefnherberginu. Sængur og koddar eru fyrir 8 manns. Eldhús endurnýjað í nóvember 2009. Góður pallur er í kringum bústaðinn, heitur pottur, gasgrill og garðhúsgögn.
Lyklar eru afhentir á skrifstofu félagsins, Þjóðbraut 1, ásamt tuskum og gólfmoppu. Gestir þurfa sjálfir að fara með rúmföt, handklæði, diskaþurrkur og salernispappír.
Hægt er að sjá fleiri myndir hér. Kort af sumarhúsabyggðinni í Húsafelli er hér.