Sunnubraut 13 | 300 Akranes | Sími 4309900 | Fax 430 9901 | skrifstofa@vlfa.is
Stærra letur Minna letur
0

SÉRKJÖR OG AFSLÆTTIR

  • Apótek Vesturlands
  • Bílar og dekk
  • Brautin ehf
  • Galleri Ozone
  • Grand hótel Reykjavík  
  • LH bókhald ehf
  • Model - Ormsson
  • N1
  • Olís
  • Omnis
  • Pípulagningafélag Lýðveldisins
  • Rafþjónusta Sigurdórs ehf
  • Snyrtistofan Dekur
  • Trésmiðjan Akur
  • VÍS  

0
0

LÖGFRÆÐIÞJÓNUSTA 

Félagsmenn geta fengið ókeypis lögfræðirágjöf hjá lögmanni félagsins með því að panta sér viðtalstíma á skrifstofu félagsins í síma 430-9900

 

0

Réttindi hjá Sjúkrasjóði Verkalýðsfélags Akraness

 


Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Akraness njóta fjölbreyttra réttinda hjá sjúkrasjóðnum í samræmi við reglugerð hans. Helstu réttindi eru:

 

- Fullgildir félagsmenn eiga rétt á sjúkradagpeningum eftir að samningsbundinni kaupgreiðslu lýkur frá atvinnurekenda. Dagpeningar skulu að viðbættum bótum almannatrygginga, greiðslum úr slysatryggingu launafólks eða annarri lögbundinni tryggingu, ekki nema lægri fjárhæð en 80% af meðaltali þeirra heildarlauna sem iðgjald hefur verið greitt af á síðustu 6 mánuðum, þó aldrei lægri fjárhæð en kr. 182.000 miðað við fullt starf en ella hlutfallslega. Hámark dagpeninga er   kr. 280.000.


- Ef um veikindi maka eða barna er að ræða er hægt að sækja um styrk til stjórnar sjúkrasjóðs vegna vinnutaps af þeim völdum.

 

- Sjúkradagpeningar vegna áfengismeðferðar eða fíkniefnameðferðar í allt að 100 daga.


- Fæðingarstyrkur greiðist til félagsmanna sem eignast börn.  Fæðingarstyrkurinn er nú kr. 35.000.  Séu báðir foreldrar félagsmenn er styrkurinn greiddur með 50% álagi.

 

- Styrkur vegna glasa-, tæknifrjóvgunar eða ættleiðingar kr. 100.000, þó aðeins í eitt sinn.

 

- Greiðsla vegna Heilsufarsskoðunar (t.d. krabbameinsskoðun, skoðun hjá Hjartavernd, speglanir) 50% af kostnaði að hámarki 15.000 á 12 mánaða tímabili.

 

- Gleraugnastyrkur pr. félaga á 24 mánaða tímabili 50% af reikningi þó að hámarki 40.000. Skilyrði er að greitt hafi verið í sjóðinn samfellt í a.m.k. 12 síðustu mánuði. Heimilt er að nýta þennan styrk vegna augnaðgerða, linsukaupa og sjónþjálfunar auk gleraugnakaupa. Gleraugnastyrk er hægt að nýta fyrir barn félagsmanns 50% af reikningi á hámarki kr. 10.000 á 12 mánaða tímabili.

 

- Heyrnartækjastyrkur pr. félaga á 36 mánaða tímabili 50% af reikningi þó að hámarki 40.000,- Skilyrði er að greitt hafi verið í sjóðinn samfellt í a.m.k. 12 síðustu mánuði.

 

- Heilsueflingarstyrkur pr. félaga á 12 mánaða tímabili 50% af reikningi þó að hámarki 20.000. Skilyrði er að greitt hafi verið í sjóðinn samfellt í 12 síðustu mánuði.


- Félagsmenn sem fara í sjúkraþjálfun/sjúkranudd hjá löggiltum sjúkraþjálfara/sjúkranuddara fá endurgreiddan helming kostnaðar, allt að 50.000 kr. á 12 mánaða tímabili.

 

- Sama rétt eiga elli- og örorkulífeyrisþegar vegna sjúkraþjálfunar/sjúkranudds, þ.e. allt að 50.000 kr. en aðeins einu sinni. Heimilt er að nýta þennan rétt í eitt skipti til greiðslu dvalar á heilsu- og hjúkrunarheimilum sem bjóða upp á sjúkraþjálfun/ sjúkranudd.


- Sjúkrasjóður veitir dánarbætur kr. 180.000 vegna fráfalls félagsmanns. Rétthafar bóta eru maki félagsmanns og að honum frágengnum börn hans undir 18 ára.

 

- Styrkur vegna viðtalsmeðferðar hjá sálfræðingum / fjölskylduráðgjöfum. Endurgreiddar eru kr. 3.000 pr. viðtalstíma í allt að 15 skipti. Hámark 45.000 á hverjum 12 mánuðum.

 

- Styrkur vegna göngugreiningar og innleggjakaupa, kostnaður greiddur allt að kr. 5.000 á hverjum 12 mánuðum.

 

 

Hægt er að lesa reglugerð sjúkrasjóðs í heild sinni hér og bótareglur sjóðsins hér

Sótt er um greiðslur á sérstökum eyðublöðum sem hægt er að fá hér eða hjá skrifstofu félagsins. 

0
0
0

Fréttir

22. febrúar 2012
Páll Jónsson, Sigurður Guðjónsson og Grímar Teitsson gæða sér á súpu að loknum fundinum í gær Í gærkvöldi ...
20. febrúar 2012
Enn fjölgar í hópi þeirra fyrirtækja og þjónustuaðila sem bjóða félagsmönnum Verkalýðsfélags Akraness afslæ...
17. febrúar 2012
Eygló Harðardóttir Formanni félagsins var boðið að sitja fund um lífeyrissjóðina í grasrótamiðstöðinni í R...
0