Sunnubraut 13 | 300 Akranes | Sími 4309900 | Fax 430 9901 | skrifstofa@vlfa.is
Stærra letur Minna letur
0

SÉRKJÖR OG AFSLÆTTIR

  • Apótek Vesturlands
  • Bílar og dekk
  • Brautin ehf
  • Galleri Ozone
  • Grand hótel Reykjavík  
  • LH bókhald ehf
  • Model - Ormsson
  • N1
  • Olís
  • Omnis
  • Pípulagningafélag Lýðveldisins
  • Rafþjónusta Sigurdórs ehf
  • Snyrtistofan Dekur
  • Trésmiðjan Akur
  • VÍS  

0
0

LÖGFRÆÐIÞJÓNUSTA 

Félagsmenn geta fengið ókeypis lögfræðirágjöf hjá lögmanni félagsins með því að panta sér viðtalstíma á skrifstofu félagsins í síma 430-9900

 

0

Úthlutunarreglur

 

Á sumrin eru orlofshús félagsins leigð félagsmönnum til vikudvalar í senn, en á öðrum tímum eftir samkomulagi.  Úthlutun að sumri til fer eftir sérstöku punktakerfi og eru reglur um ávinnslu og frádrátt punkta eftirfarandi:

 

Hver félagsmaður sem greiðir félagsgjald ávinnur sér einn punkt fyrir hvern mánuð, þ.e. getur mest fengið 12 punkta á ári.  Gjaldfrjálsir félagsmenn, þ.e. lífeyrisþegar fá gefins frá félaginu hálfan punkt fyrir hvern mánuð, þ.e. mest 6 punkta á ári.

 

Þegar félagsmaður fær úthlutað orlofshúsi á sumarvertíð þá eru dregnir frá punktainneign hans 24 punktar fyrir vikur nr. 1-3 og vikur nr. 12-15, en 36 punktar fyrir vikur nr. 4-11.  Við úthlutun á öðrum tímum koma engir punktar til frádráttar.

 

Ef fleiri en ein umsókn er um sama húsið sömu vikuna ræður punktainneign félagsmanns því hver hreppir húsið í það skiptið.  Ef punktafjöldi þeirra er jafn ræður sú umsókn sem berst fyrst.  Á umsóknareyðublöðum um orlofshús er gefinn kostur á allt að sex valmöguleikum.  Því fleiri valkosti sem merkt er við, þeim mun meiri líkur eru á úthlutun.  Eins og áður segir skerðir vetrarúthlutun ekki rétt til sumarúthlutunar.

 

 

0
0
0

Fréttir

15. maí 2012
Atvinnurekendur geta ráðskast með lífeyri launafólks Eins og fram kom í frétt hér á heimasíðunni þá var ár...
15. maí 2012
Í gær var haldinn ársfundur Lífeyrissjóðs Festu á Grandhóteli. Formaður Verkalýðsfélags Akraness lagði fram þ...
11. maí 2012
Aukaþing Starfsgreinasambands Íslands var haldið í gær en Verkalýðsfélag Akraness átti 6 fulltrúa á þinginu. ...
0