Sunnubraut 13 | 300 Akranes | Sími 4309900 | Fax 430 9901 | skrifstofa@vlfa.is
Stærra letur Minna letur
0

SÉRKJÖR OG AFSLÆTTIR

  • Apótek Vesturlands
  • Bílar og dekk
  • Brautin ehf
  • Galleri Ozone
  • Grand hótel Reykjavík  
  • LH bókhald ehf
  • Model - Ormsson
  • N1
  • Olís
  • Omnis
  • Pípulagningafélag Lýðveldisins
  • Rafþjónusta Sigurdórs ehf
  • Snyrtistofan Dekur
  • Trésmiðjan Akur
  • VÍS  

0
0

LÖGFRÆÐIÞJÓNUSTA 

Félagsmenn geta fengið ókeypis lögfræðirágjöf hjá lögmanni félagsins með því að panta sér viðtalstíma á skrifstofu félagsins í síma 430-9900

 

0

 Hús nr. 11 - Ölfusborgum 

 

Ölfusborgir Séð inn í eldhúsið

 

Notaleg sólstofa var byggð

við húsið 2010

Orlofshúsabyggðin Ölfusborgum.

Hveragerði í baksýn.

 

 

 

Bústaðurinn er um 40m2 með tveimur svefnherbergjum. Í öðru herberginu eru tvö rúm, annað tvíbreitt og hitt einbreitt, en í hinu herberginu er eitt tvíbreitt rúm. Auk þess er tvíbreiður svefnsófi í stofunni. Sólstofa byggð 2010. Barnarúm er í húsinu. Sængur og koddar eru fyrir 7 manns. Í húsinu er afruglari frá 365 miðlum og hægt að kaupa skammtímaáskrift þegar komið er í húsið, nánari upplýsingar um það eru í húsinu.
 
Bústaðurinn var allur tekinn í gegn vorið 2010 og endurnýjaður í hólf og gólf.
 
Góður pallur er við bústaðinn, heitur pottur, gasgrill og garðhúsgögn.
 
Umhverfið er barnvænt, bílaumferð um svæðið er takmörkuð og á svæðinu eru opin leiksvæði fyrir börnin. Á svæðinu er þjónustumiðstöð sem opin er allan ársins hring. Allt dýrahald í húsunum er með öllu óleyfilegt.

 

Orlofshverfið er örstutt frá Hveragerði þar sem hægt er að fá alla þjónustu og þar er ágætis sundlaug.  Einnig er stutt á Selfoss og ýmislegt að sjá í sveitunum í kring,  t.d. sjávarþorpin  Þorlákshöfn, Eyrarbakka og Stokkseyri og marga sögufræga staði í Árnessýslu.
 
Skrifstofa félagsins sér um útleigu en lyklar eru afhentir í þjónustumiðstöðinni gegn framvísun leigusamnings. 
Gestir þurfa sjálfir að fara með rúmföt, handklæði og diskaþurrkur.

 

Hægt er að sjá fleiri myndir hér.

 

Kort

 

0
0
0

Fréttir

15. maí 2012
Atvinnurekendur geta ráðskast með lífeyri launafólks Eins og fram kom í frétt hér á heimasíðunni þá var ár...
15. maí 2012
Í gær var haldinn ársfundur Lífeyrissjóðs Festu á Grandhóteli. Formaður Verkalýðsfélags Akraness lagði fram þ...
11. maí 2012
Aukaþing Starfsgreinasambands Íslands var haldið í gær en Verkalýðsfélag Akraness átti 6 fulltrúa á þinginu. ...
0