Sunnubraut 13 | 300 Akranes | Sími 4309900 | Fax 430 9901 | skrifstofa@vlfa.is
Stærra letur Minna letur
0

SÉRKJÖR OG AFSLÆTTIR

  • Apótek Vesturlands
  • Bílar og dekk
  • Brautin ehf
  • Galleri Ozone
  • Grand hótel Reykjavík  
  • LH bókhald ehf
  • Model - Ormsson
  • N1
  • Olís
  • Omnis
  • Pípulagningafélag Lýðveldisins
  • Rafþjónusta Sigurdórs ehf
  • Snyrtistofan Dekur
  • Trésmiðjan Akur
  • VÍS  

0
0

LÖGFRÆÐIÞJÓNUSTA 

Félagsmenn geta fengið ókeypis lögfræðirágjöf hjá lögmanni félagsins með því að panta sér viðtalstíma á skrifstofu félagsins í síma 430-9900

 

0
21. nóvember 2011

Stóriðjufyrirtæki skattlögð úr landi

Eins og fram kom hér á heimasíðunni fyrir helgi þá mun fjármálaráðherra nú fyrir jól leggja fram frumvarp til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum sem kveður á um að tekinn verður upp nýr afar íþyngjandi kolefnisskattur á stóriðjufyrirtækin.

 

Þessi nýi skattur mun stefna atvinnuöryggi starfsmanna Elkem Ísland í tvísýnu og verða þess valdandi að rekstrarhagnaður fyrirtækisins síðustu ára þurrkast algerlega upp.   

 

Formaður félagsins óttast það að eigendur Elkem Ísland taki ákvörðun að hætta starfsemi hér á landi ef þessar íþyngjandi álögur verða settar á fyrirtækið enda verður þá nánast útilokað fyrir fyrirtækið að skila arði til sinna eigenda.

 

Hvernig eiga erlendir fjárfestar að hafa áhuga á að fjárfesta hér á landi og skapa atvinnu hér þegar svona vinnubrögð eru ástunduð af hálfu stjórnvalda.  Nú liggur fyrir að þessi skattastefna Steingríms J. Sigfússonar hefur sett Kísilverið á Reykjanesi í algert uppnám.  Framkvæmdir þar áttu að hefjast strax eftir áramót, en áætlað er að um 110 manns komi til með að fá vinnu við Kísilverið á Reykjanesi.

Rétt er að geta þess að í umsögn forstjóra Íslenska Kísilfélagsins til Efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis kemur fram að forstjórinn telji að kísiliðnaður fái ekki þrifist á Íslandi ef kolefnisgjaldið verður lögfest og telur mikla áhættu á því að amerískir fjárfestar hætti við verkefnið og neyðist til þess að róa á ný mið.

 

Ætlar almenningur hér á landi að láta það átölulaust þegar hundruðum starfa er stefnt í verulega hættu og að hætt verði fjárfestingarverkefni eins og Kísilverið á Reykjanesi, framkvæmdir sem myndu skila allt að 110 manns atvinnu. 

 

Formaður félagsins veltir því fyrir sér enn og aftur á hvaða vegferð ríkisstjórnin er í ljósi þess að þessi skattlagning mun klárlega setja lífsviðurværi hundraða fjölskyldna í algert uppnám og væntanlega setja framkvæmdir kísilveranna í óvissu.  Hvernig eiga erlendir fjárfestar að hafa áhuga á að fjárfesta hér á landi og skapa atvinnu hér þegar svona vinnubrögð eru ástunduð af hálfu stjórnvalda.

 

Ætlar ríkisstjórnin að skapa þannig rekstrarskilyrði fyrir stóriðjurnar hér á landi að þegar kreppir að á heimsmarkaði þá séu meiri líkur á því að verksmiðjum verði lokað hér á landi? Það er orðið löngu tímabært að fjármálaráðherrann átti sig á því að velferðarkerfi okkar Íslendinga byggist á því að búa til gjaldeyristekjur.  Það verður ekki gert með því að skattleggja útflutningsfyrirtækin út úr landinu með íþyngjandi álögum.

 

 

 

 

 

Senda á Facebook
< Til baka
0
0