Verkalýðsfélag Akraness
Hvað er í boði fyrir fullgilda félagsmenn:
Félagssjóður:
Aðstoð við túlkun á kjarasamningum
Ókeypis lögfræðiráðgjöf hjá lögmanni félagsins
Aðstoð við gerð skattframtals
Aðstoð við að varðveita áunnin réttindi
Kjarasamningagerð fyrir félagsmenn
Aðstoð við að innheimta vangreidd laun
Sjúkrasjóður:
Fullgildir félagsmenn eiga rétt á sjúkradagpeningum eftir að samningsbundinni kaupgreiðslu lýkur frá atvinnurekenda. Dagpeningar skulu að viðbættum bótum almannatrygginga, greiðslum úr slysatryggingu launafólks eða annarri lögbundinni tryggingu, ekki nema lægri fjárhæð en 80% af meðaltali þeirra heildarlauna sem iðgjald hefur verið greitt af á síðustu 6 mánuðum, þó aldrei lægri fjárhæð en kr. 157.000 miðað við fullt starf en ella hlutfallslega. Hámark dagpeninga er kr. 280.000
- Sjúkradagpeningar vegna áfengismeðferðar eða fíkniefnameðferðar í allt að 100 daga.
- Einstæðir foreldrar fá greidda sjúkradagpeningar vegna veikinda barns í allt að 10 daga á ári.
- Eingreiddar dánarbætur. Rétthafar bóta eru maki en að honum frágengnum börn undir 18 ára.
- Félagsmenn sem fara í sjúkraþjálfun/sjúkranudd hjá löggiltum sjúkraþjálfara/sjúkranuddara fá endurgreiddan helming kostnaðar, allt að 50.000 kr. á ári.
- Sama rétt eiga elli- og örorkulífeyrisþegar vegna sjúkraþjálfunar/sjúkranudds, þ.e. allt að 50.000 kr. en aðeins einu sinni. Heimilt er að nýta þennan rétt í eitt skipti til greiðslu dvalar á heilsu- og hjúkrunarheimilum sem bjóða upp á sjúkraþjálfun/ sjúkranudd.
- Fæðingarstyrkur greiðist til félagsmanna sem eignast börn. Fæðingarstyrkurinn er nú kr. 35.000. Séu báðir foreldrar félagsmenn er styrkurinn greiddur með 50% álagi.
- Styrkur vegna glasa-, tæknifrjóvgunar eða ættleiðingar kr. 100.000, þó aðeins í eitt sinn.
- Greiðsla vegna heilsufarsskoðunar (Hjartavernd, krabbameinsleit, segulómskoðun) 50% af kostnaði að hámarki kr. 20.000 á ári.
- Gleraugnastyrkur pr. félaga á 24 mánaða tímabili 50% af reikningi þó að hámarki 40.000. Skilyrði er að greitt hafi verið í sjóðinn samfellt í a.m.k. 12 síðustu mánuði. Heimilt er að nýta þennan styrk vegna augnaðgerða í stað gleraugnakaupa. Gleraugnastyrk er hægt að nýta fyrir barn félagsmanns 50% af reikningi á hámarki kr. 10.000 á 12 mánaða tímabili.
- Heyrnartækjastyrkur pr. félaga á 36 mánaða tímabili 50% af reikningi þó að hámarki 40.000,- Skilyrði er að greitt hafi verið í sjóðinn samfellt í a.m.k. 12 síðustu mánuði.
- Heilsueflingarstyrkur pr. félaga á 12 mánaða tímabili 50% af reikningi þó að hámarki 20.000. Skilyrði er að greitt hafi verið í sjóðinn samfellt í 12 síðustu mánuði.
- Styrkur vegna viðtalsmeðferðar hjá sálfræðingum / fjölskylduráðgjöfum. Endurgreiddar eru kr. 3.000 pr. viðtalstíma í allt að 15 skipti. Hámark 45.000 á hverjum 12 mánuðum. Tilvísun læknis þarf til.
-Styrkur vegna göngugreiningar kr. 5.000.
Orlofssjóður:
10 orlofshús, sumar- og vetrarleiga
Frí veiðileyfi í Svínadal (Þórisstaðavatn, Eyrarvatn og Geitabergsvatn)
Frír aðgangur að tjaldsvæðinu á Þórisstöðum
30-60% afsláttur í Hvalfjarðargöng og Herjólf
Útilegukort og Veiðikort með ca. 50% afslætti
Gistimiðar á Hótel Eddu og Fosshótel með ca. 50% afslætti
Ferð í boði félagsins fyrir eldri félagsmenn
Vinnudeilusjóður:
Styrkir til félagsmanna í verkföllum eða verkbönnum
Fræðslusjóður:
Styrkir eru veittir til starfsnáms, sem auka möguleika félagsmanns á vinnumarkaði.
Við ákvörðun upphæðar er miðað við greidd félagsgjöld síðustu 12 mánaða. Félagsgjald af lágmarkslaunum í 100% starfi eða meira gefur fulla styrkupphæð.
Styrkupphæð er að hámarki kr. 60.000 á ári, en aldrei hærri en sem nemur 75% af námskeiðskostnaði.
Jafnframt eru veittir styrkir vegna frístunda-/tómstundanámskeiða og verður endurgreiðsla vegna þeirra 50% af kostnaði en aldrei hærri en kr. 18.000 á ári og dregst jafnframt af heildarupphæð styrks vegna starfsnáms.
Félagsmenn eru eindregið hvattir til að hafa samband við skrifstofu félagsins og fá nánari upplýsingar um hvaða rétt félagsmenn eiga úr starfsmenntunarsjóði sínum.
Stéttarfélag á hraðri uppleið